• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Mánudagur, 5. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Þrír synir, þrjár raðir og þrefaldur pottur!

ritstjorn by ritstjorn
30. desember 2021
in Fréttir, Innlent
0
Share on FacebookShare on Twitter
Það var heppin kona á sjötugsaldri sem var ein með allar tölur réttar í Lottó á jóladag en þá var dreginn út hæsti þrefaldi pottur hingað til;
rúmlega 41,1 milljón króna.

Konan, sem býr á höfuðborgarsvæðinu, lét athuga miðann á sölustað í gær og var vísað niður í Laugardal í höfuðstöðvar Íslenskrar getspár. Þar voru góðu fréttirnar opinberaðar og komu vinningshafanum gjörsamlega í opna skjöldu.

Segja má að vinningurinn hafi verið heppileg aukaverkun af jólastressinu því eins og sú heppna lýsir því þegar var hún skyndilega stödd fyrir framan N1 við Bíldshöfða án þess að muna hvaða erindi hún átti þangað. Hún ákvað því að skella sér bara inn og kaupa Lottómiða. Hún brá ekki út af vananum og keypti þrjár raðir í sjálfvali þar sem hún á þrjá syni.

Þessi lukkulega kona segir vinninginn einstaklega kærkominn og fyrsta verk sé að greiða eftirstöðvarnar af húsnæðisláninu. En mest hlakkar hún til að fagna með sonum sínum enda séu þeir allir hjá henni núna um hátíðarnar þótt þeir séu uppkomnir og búsettir erlendis.

Á jóladag var einnig dregið í Milljólaleiknum og hlutu 25 heppnir spilarar eina milljón hver; þar af voru 15 áskrifendur og 10 með staka miða.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryrkja, íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af sölu Lottó.

Discussion about this post

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ný gögn í Madeleine McCann málinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?