• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Takmörk á beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. desember 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Samráðshópur notenda sem Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra skipaði til að fjalla um áformaðar breytingar á lögum um réttindi sjúklinga varðandi beitingu nauðungar hefur skilað ráðherra niðurstöðum sínum. Hópnum var falið að fjalla um frumvarp þessa efnis sem tvívegis hefur verið lagt fram á Alþingi en ekki náð fram að ganga. Tillögur samráðshópsins miða allar að því að þrengja heimildir til beitingu nauðungar frá fyrra frumvarpi og setja auknar skorður miðað við framkvæmdina eins og hún er í  dag. Hópurinn ítrekar þá meginreglu að fólk skuli ráða meðferð sinni sjálft og að dregið verði markvisst úr beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu.

Teljist óhjákvæmilegt að beita nauðung verður skylt að sækja fyrir fram um undanþágu til lögskipaðs sérfræðiteymis samkvæmt tillögum samráðshópsins. Beiting nauðungar skal byggð skýrum reglum sem kveða á um einstaklingsbundið mat á aðstæðum, verklag framkvæmdar, tilkynningarskyldu til eftirlitsaðila og kæruleið.

Hópurinn telur að í neyðartilvikum geti beiting nauðungar verið óhjákvæmileg til að uppfylla lífsnauðsynlegar þarfir sjúklings eða tryggja öryggi hans. Hafi nauðung verið beitt í neyðartilviki ber að tilkynna það til sérfræðiteymisins. Hópurinn leggur einnig til aukna aðkomu notenda að sérfræðiteyminu þannig að þrír af sjö fulltrúum þess verða fulltrúar notenda í stað eins áður. Enn fremur er lagt til að sjúklingar eigi rétt á úrvinnslumeðferð eftir beitingu nauðungar.

Í vinnu hópsins um takmarkanir á beitingu nauðungar var sérstaklega horft til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, samnings Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og Evrópusamnings um varnir gegn pyndingum og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.

Í meðfylgjandi skilabréfi starfshópsins er fjallað um hvernig starfi hans var háttað og gerð grein fyrir öllum tillögum hans til breytinga á fyrrnefndu frumvarpi. Hópurinn viðhafði það verklag að ræða allar athugasemdir sem fram komu á fundum hans og komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvort og þá hvaða breytingar á frumvarpinu yrðu lagðar til í ljósi athugasemdina. Niðurstöður starfshópsins eru því sameiginlegar allra sem í honum áttu sæti.

Gert er ráð fyrir að drög að frumvarpi til breytinga á lögum um réttindi sjúklinga varðandi takmörk á beitingu nauðungar verði birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda fljótlega eftir áramót.

  • Skilabréf samráðshópsins
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tekinn af lífi á netinu og ranglega sakaður um alvarleg kynferðisbrot

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?