• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 15. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Áhöfn TF-SIF kölluð út vegna fljótandi neyðarsendis

Áhöfn TF-SIF kölluð út vegna fljótandi neyðarsendis

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
30. desember 2023
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í gærkvöldi eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning í gegnum gervitungl um að neyðarsendir væri virkur djúpt suður af Reykjanesi. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var sömuleiðis höfð í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli.

Við athugun varðstjóra í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kom í ljós að staðsetning neyðarsendisins væri í nágrenni við maltneska flutningaskipið Ludogerests sem var á siglingu um 114 sjómílum suðvestur af Reykjanesi. Um borð í Ludogerets sagðist áhöfnin ekki sakna neins búnaðar eða mannskaps og allt væri í himnalagi um borð.

Þegar flugvél Landhelgisgæslunnar kom á svæðið heyrðist greinilega í sendinum, baujan sem sendi neyðarmerkið í gegnum gervitunglið sást greinilega og stuttu seinna sást ljósmerki frá neyðarsendinum. Ekkert annað sást á floti í nágrenninu.

Eftir samskipti stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar og samhæfingarstöðvarinnar í Portúgal kom í ljós að umræddur neyðarsendir var skráður á flutningaskip sem áður hét Macaran en bæri nú nafnið Ludogerets. Í ljósi þessara upplýsinga var talið óhætt að kalla TF-SIF aftur til Reykjavíkur. Búnaður og þjálfun áhafnar hennar reyndist sérlega vel í útkallinu og sem betur fer reyndist enginn vera í hættu.

Umræða
Share3Tweet2
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    Ekkert ferðaveður og allt að 35 m/s

    114 deilingar
    Share 46 Tweet 29
  • Næsta lægð er væntanleg

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Landssamráðsfundur án samráðs – lögregla hunsar karlkyns þolendur ofbeldis

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • ,,Ég á kvótann með þjóðinni – voru með útsýnisflug fyrir kvótaþega“

    17 deilingar
    Share 7 Tweet 4
  • Hæstu okurvextir í heimi – ,,Það er eitthvað að fólki“

    15 deilingar
    Share 6 Tweet 4
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?