Í dag verður norðlæg átt á landinu, víða 5-13 m/s, en heldur hvassari undir austanverðum Vatnajökli í kvöld. Það verður snjókoma með köflum norðanlands, en léttskýjað sunnantil. Frostið verður yfirleitt á bilinu 0 til 7 stig, kaldast inn til landsins.
Það lægir í nótt, og á morgun verður hæg breytileg átt og úrkomulítið veður. Það herðir á frosti, og búast má við tveggja stafa frosttölum í innsveitum norðanlands.
Á sunnudag verður svo hæg suðlæg átt með stöku éljum sunnan- og vestantil á landinu, og áfram kalt í veðri.
Veðurhorfur á landinu
Norðan og norðaustan 5-13 m/s, snjókoma með köflum norðanlands, en yfirleitt léttskýjað sunnantil. Frost 0 til 7 stig, kaldast inn til landsins.
Hæg breytileg átt á morgun, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en dálítil él norðaustantil fyrri part dags. Frost 1 til 12 stig, kaldast í innsveitum norðaustanlands.
Spá gerð: 31.01.2020 05:30. Gildir til: 01.02.2020 00:00.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Hæg breytileg átt, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt, en norðvestan 5-13 m/s og dálítil él norðaustantil fyrri part dags. Frost 1 til 12 stig, kaldast inn til landsins.
Á sunnudag:
Fremur hæg suðlæg átt. Skýjað með köflum eða bjartviðri, en stöku él um landið sunnan- og vestanvert. Frost 3 til 13 stig, kaldast í innsveitum.
Á mánudag:
Fremur hæg breytileg og síðar norðlæg átt. Skýjað með köflum og stöku él. Áfram kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Gengur í hvassa sunnan- og suðvestanátt með slyddu eða rigningu sunnan- og vestantil. Hlýnandi veður.
Á miðvikudag:
Suðvestlæg átt með skúrum eða slydduéljum, og síðar rigningu eða slyddu. Hiti um og yfir frostmarki.
Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með snjókomu eða éljum. Kólnandi veður.
Spá gerð: 30.01.2020 20:47. Gildir til: 06.02.2020 12:00.