,,Verðtryggingin er ólögleg glæpastarfsemi“
Segir aðgerðarpakka ríkisstjórnarinnar aðeins vera einn tíunda af 230 milljörðum þegar vel er skoðað
Viðskiptafræðingurinn og fyrrverandi verðbréfamiðlari Guðmundur Franklín Jónsson kom víða við í pistli sínum í dag. ,,Íslenska kerfið er fátækragildra og það er farið illa með öryrkja á Íslandi, kaupmáttur er miklu verri hér en td. í Danmörku, þegar kemur að framfærslu fólks og það kemur harðast niður á öryrkjum.
Þá sé það fáránlegt að skattleggja þá smánarlegu lágu fjárhæð sem ríkið ákveður að öryrkjar eigi að lifa á. Þá sé verðtryggingin hættuleg og örugglega 100% ólögleg og ekkert annað en glælpastarfsemi sem þekkist hvergi í veröldinni nema á Íslandi. Þá sé krónan að ,,skítfalla“ og þeir efnameiri séu að flytja peninga úr landi í stórum stíl.
Menn sem séu að flytja fé úr landi, gæti ekki verið meira sama um fólkið í landinu eða landið sitt yfir höfuð.
Inga Sæland sendi í þessu samhengi póst til Guðmundar ,, Takk Guðmundur fyrir þitt góða framtak. Mig langar að vita meira um peningana sem verið er að flytja úr landi? Það er grafalvarlegt mál.
Hann sagði m.a. mörg fyrirtæki ekki þurfa neina aðstoð frá ríkinu, þau hafa gengið það vel og greitt eigendum sínum milljarða í arð og hafa núna lokað eins og t.d. Bláa lónið. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga ekki alltaf rétt á sér því það er jafnvel verið að veita fyrirtækjum aðstoð sem þurfa ekkert á henni að halda. Hér er pistillin í heild sinni:
https://www.facebook.com/100000358011569/videos/3045631132125457/