Fallegur vordagur á varðsvæði LRH og var nokkuð stíft fylgst með umferð af því tilefni. Tveir aðilar voru staðnir að akstri ökutækja þrátt fyrir að hafa verið sviptir ökuréttindum og bíður þeirra veglegt framlag í ríkissjóð að launum, en háar sektir eru við slíkum akstri.
Þá var aðili sömuleiðis stöðvaður í akstri án þess að hafa öðlast ökuréttindi, en auk sektar seinkar slíkt athæfi því að viðkomandi geti öðlast ökuréttindi. 3 ökumenn voru stöðvaðir vegna notkunar á farsímum í akstri og þá voru ökumenn einnig sektaðir fyrir of hraðan akstur og akstur gegn rauðu ljósi. Auk þessa voru teknar stikkprufur víða í borginni með tilliti til ölvunaraksturs en blessunarlega var enginn þeirra sem stöðvaðir voru undir áhrifum. Skráningarnúmer voru fjarlægðar af tíu ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu, vegna vanrækslu á skoðun eða greiðslu lögbundinna vátrygginga.
Lögregla sinnti ýmsum útköllum þennan daginn. Tilkynnt var um þjófnað af hóteli í miðborginni og þá fór lögregla til aðstoðar í verslun annars vegar og á hótel hins vegar vegna ölvaðra einstaklinga sem ullu sér ekki sakir ástands síns. Þá var aðili handtekinn á almannafæri í Hafnarfirði vegna ölvunar og ósæmilegrar hegðunar gagnvart samborgurum sínum. Var viðkomandi handtekinn og vistaður í fangageymslu uns af honum rennur, auk þess sem hans bíður sekt vegna brota á áfengislöggjöf.
Alvarlegt vinnuslys varð í Garðabæ og er málið í rannsókn. Þá var lögregla kölluð að skóla í Reykjavík þar sem nemandi réðist á kennara og braut rúðu. Unnið verður að málinu í samráði við skóla og foreldra.
Tilkynnt var um stuld á bifreið og er hennar leitað. Þá barst lögreglu aðstoðarbeiðni frá borgara sem rankaði við sér í strætisvagni í Reykjavík, en vagninn var mannlaus á endastöð og farþeginn komst ekki út. Var vakstöð Strætó gert viðvart og leystu þeir hinn seinheppna farþega úr prísundinni.
Aðili handtekinn í Kópavogi með fíkniefni í fórum sínum og reyndist sá hafa dvalið lengur á Schengen svæðinu en leyfilegt er. Var aðilinn handtekinn og færður á lögreglustöð, en hans bíður brottvísun.