Það var heldur betur ánægður EuroJackpot spilari sem mætti á skrifstofu Íslenskrar getspár í gær með miða sem keyptur var í Bitahöllinni á Bíldshöfða í Reykjavík. Miðinn góði innihélt 5 réttar tölur ásamt einni stjörnutölu og færir vinningshafanum 99,3 skattfrjálsar milljónir.
Vinnigshafinn komst að því þegar hann fylgdist með Lottó útdrættinum á laugardagskvöld að vinningsmiðinn í EuroJackpot hefði verið keyptur í Bitahöllinni og neyddist því til að standa upp frá sjónvarpinu, staulast inn í eldhús og finna miðann sinn. Hann var þó furðu rólegur þegar hann áttaði sig á vinningnum og beið fram á miðvikudag með að gefa sig fram.
Vinningshafinn reyndist rúmlega sextugur karlmaður sem sagði vinninginn koma sér einstaklega vel þar sem tími væri kominn að skipta um íbúð. Hann hefði lengi haft augastað á ákveðinni staðsetningu í Reykjavík og nú ætlar hann að láta slag standa og kaupa sér íbúð á drauma staðsetningunni. Fyrir afganginn stæði svo til að uppfæra jafnvel fararskjótann sem kominn er til ára sinna og hentar honum illa.
Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryrkja, íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af sölu Lottó.