• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Login
Miðvikudagur, 7. júní 2023
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
Frettatiminn
No Result
View All Result

Heilbrigð þarmaflóra er undirstaða heilsunnar

ritstjorn by ritstjorn
5. maí 2023
in Afþreying, Innlent
0
Heilbrigð þarmaflóra er undirstaða heilsunnar
Share on FacebookShare on Twitter

Ragga nagli er sálfræðingur með áherslu á heilsuvenjur og einkaþjálfari með áherslu á heilbrigðan lífsstíll. Hún skrifar mjög oft áhugaverða pistla um mál tengd heilsu, hreyfingu ofl. Hér að neðan er einn þeirra sem við mælum með að allir lesi og fari eftir. 

Eftir sjö daga á pensilínkúr er meltingarkerfi Naglans ansi mikið á felgunni en notkun sýklalyfja raska jafnvæginu í þarmaflórunni. Meltingarvegurinn gegnir margvíslegu hlutverki í að verja okkur gegn sýkingum og ef ójafnvægi myndast getur það leitt til sjúkdóma.
Trilljónir af bakteríum eru eins og galeiðuþrælar í þörmunum að melta og frásoga orku, andoxunarefni, vítamín og steinefni úr matnum sem við gúllum í ginið. Og þeirra verki er ekki lokið þar, því eins og skúringakellingar eftir rokktónleika skúra þær út óþarfa og ósóma og styðja þannig við heilbrigt ónæmiskerfi og halda pípulögninni reglulegri.
Þess vegna eru nú gangsett allsherjar klössun á þessu óralanga líffæri fyrir miðju skrokksins.
Rannsóknir sýna að bæði fæði (prebiotics) og góðgerlar (probiotics) geta komið aftur jafnvægi á þarmana eftir notkun sýklalyfja. Það er ýmislegt til ráða við laskaðri þarmaflóru.
🔹Auka neyslu á trefjaríkri fæðu eins og grænmeti og ávöxtum. Skúbba 1-2 msk af Psyllium Husk frá NOW út í hafragrautinn.
🔹Gúlla eplaedik á fastandi maga 1-2x á dag.
🔹Minnka neyslu á súkralósa og aspartame og nota náttúrulegri sætuefni eins og erythritol og stevia í staðinn. T.d Stevia dropa frá Good Good og Now. Erythritol eða Sweet like Stevia strásætu
🔹Meltingarensími eins og Dairy Digest og Gluten Digest hjálpa líkamanum að brjóta niður glútein og mjólkursykur.
🔹L-glutamine amínósýran býr til verndandi filmu innan á þörmunum. 5-10 g á dag helst fyrir svefninn bætir ekki eingöngu þarmana, heldur styður við endurheimt yfir nóttina og bætir ónæmiskerfið. L-glutamine fæst bæði í duftformi eða pilluformi frá NOW.
🔹Sýrt grænmeti og sýrðar mjólkurvörur innihalda bílfarma af örverum sem hjálpa góðu bakteríunum að sinna sínu starfi. T.d grísk jógúrt, skyr, súrkál, sýrðar gúrkur.

🔹Góðgerlar dúndra inn örveru sem stuðla að betri þarmaflóru. Gott er að byrja á vægum gerlum eins og 10 billion eða Probiotic Defense og rótera á milli styrkleika reglulega. Gefa síðan þarmaflórunni frí frá öllum gerlum og leyfa henni að vinna sjálfstætt inná milli.

„Allt byrjar í þörmunum” sagði Aristóteles og það er sannarlega ekki ofsögum sagt. Hún er uppspretta á GABA, serótónín, dópamín.

Til að toppstykkið sé í lagi þarf flóran að vera partý í flórunni því taugaboðefni og hormónar krúsa þjóðveginn sem liggur frá þörmum upp í heila. Ef partýið hefur hinsvegar breyst í unglingadrykkju með gubbandi ungviði, áfengisdauðum fótboltadrengjum og Chesterfield sófasettið komið út á stétt þá verður lítið vinnuframlag til að græja boðefnin í bílana upp í heila.

Heilbrigð þarmaflóra er því undirstaða heilsunnar.

https://pubmed.ncbi.nlm.nih.gov/23728658/
#samstarf NOW Foods Iceland
May be an image of food

  • ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    ,,Ykkar verður minnst sem vesalinga sem nenntuð ekki eða þorðuð ekki“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Líkfundurinn við Borgarnes

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Vann 78 milljónir í Lottóinu

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
  • Ragnar Þór boðar til mótmæla – ,,Rísum upp gegn óréttlætinu!“

    0 shares
    Share 0 Tweet 0
ADVERTISEMENT

Fréttatíminn © 2023

No Result
View All Result
  • Home
  • Landing Page
  • Buy JNews
  • Support Forum
  • Contact Us

Fréttatíminn © 2023

Welcome Back!

Login to your account below

Forgotten Password?

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Log In
Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?