Lögregla beitti piparúða á mótmælendur sem voru saman komnir í morgun við Skuggasund þar sem fundur ríkisstjórnarinnar var haldinn.
Fjallað er ítarlega um málið á vef Morgunblaðsins þar sem fjölmargar myndir eru birtar af átökunum. ,,Kröfðust mótmælendur þess að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael og að ríkið verði beitt viðskiptaþvingunum.
Helltu mjólk í augun
Mótmælendur hrópuðu á ráðherrum er þeir gengu á ríkisstjórnarfund og lagðist einn þeirra fyrir framan bíl og stöðvuðu þannig för hans.
Á myndum sem ljósmyndari mbl.is náði af vettvangi mótmælanna má sjá lögreglu beita piparúða og mótmælendur hella mjólk í augu þeirra sem fengu úðann í andlitið.
Hér má sjá myndirnar og frétt Mbl.is um málið á vettvangi:
Umræða