Tvítugur karlmaður sem féll í Fnjóská á sjöunda tímanum í gærkvöldi fannst látinn. Leit hefur staðið yfir að honum síðan klukkan 18:30 í gærkvöldi og lauk nú á tólfta tímanum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra á Facebook. Þar segir að rannsókn málsins sé í höndum lögreglu og leitarhópar hafi verið afturkallaðir. Maðurinn fannst í ánni norðvestan við Ártún í Grýtubakkahreppi samkvæmt tilkynningu.
Um tvö hundruð hafa tekið þátt í leitinni, bæði björgunarsveitir af Norðurlandi og höfuðborgarsvæðinu, sem bættust við í morgun. Aðstæður til leitar hafa verið erfiðar þar sem leysingar eru og áin hefur verið vatnsmikil, köld og mjög gruggug.
Tilkynning barst viðbragðsaðilum í gærkvöldi eftir að maðurinn féll í Fnjóská úr gili fyrir ofan ósa hennar vestast í Dalsminni, skammt frá Pálsgerði. Hann var með þremur félögum sínum þegar hann féll og hvarf hann þeim sjónum í ánni.