Bruni á Hótel Hellu
Lögreglan og slökkvilið Brunavarna Rangárvallasýslu voru kölluð að Hótel Hellu um kl 23 nú í kvöld vegna lítils háttar bruna að því virðist úr viftu á baðherbergi á neðri hæð hótelsins.
Búið var að slökkva eldinn er slökkvilið kom á staðinn og er unnið að reykræstingu en töluverður reykur myndaðist við brunann. Engann sakaði.
Hótelið var rýmt samkvæmt áætlun og fengu gestir, sem voru um 90 talsins, inni í íþróttahúsinu á Hellu sem er í nágrenninu. Allt gekk þetta vel og er búið að fá gistingu fyrir alla gestina, sem voru afar rólegir yfir þessu ævintýri, á hótelum í grennd og er verið að aðstoða þá við að flytja sig á milli þar sem þónokkur reykur varð í húsinu.
Umræða