Ríkisstjórn Katrínar & Co hugsa frekar um fjárhag ferðaþjónustunnar og þeirra nánustu í stað þess að huga að velferð þjóðarinnar.
Fyrir nokkrum vikum áður en landamærin voru opnuð voru 0 ný smit daglega og hlutir voru komnir í eðlilegar horfur, ferðaþjónustan var búin að væla út styrk á meðan listamenn fengu ekkert.
Fyrir rúmlega 10. árum var mjög hörð kreppa á Íslandi og ekki kom ríkið í veg fyrir að fólk myndi missa heimili sín, bílana sína og aðrar eignir. Nei! Þeirra beið köld gatan eða sófi hjá ættingjum. Sama átti við um nánast öll fyrirtæki landsins nema auðvitað þau fyrirtæki sem tengdust á einn eða annan hátt ákveðnum aðilum sem tengdust XD.
Núna er árið 2020 og Sjálfstæðisflokkurinn með smá hjálp annara flokka hefur komið öllum kvótanum sem byggði upp spítala, götur og bara allt ísland á örfáar hendur þar sem fiskurinn er seldur úr landi á engu verði og seldur aftur af sama fólki erlendis á uppsprengdu verði til að sleppa við að greiða eins háan skatt hér á landi.
Við gætum lifað með kvótann og verið án ferðaþjónustu ef sumir hefðu ekki ,,fokkað öllu upp”. Þið vitið hverjir þið eruð!
Það sem pirrar mig mest núna er það að ríkisstjórnin álítur svo að enginn annar geti haldið ferðaþjónustunni uppi.
Ég man í fyrri tíð að ekki sást túristi hér á landi og við höfðum það gott, fólk í ferðaþjónustu hafði það mjög fínt og örugglega betur en flugfreyjur.
Það á ekki að koma bara einni stétt til bjargar, fyrirtæki í ferðaþjónustu mega verða gjaldþrota, það er alltaf einhver nýr til að taka við keflinu.
Þetta er aðsend grein, þú getur sent grein á frettatiminn@gamli.frettatiminn.is