Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rétt rúmlega 16 prósent fylgi í nýrri könnun og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi samkvæmt niðurstöðu úr skoðanakönnun sem Prósent framkvæmdi dagana 22. júní til 19. júlí 2023. Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar eru með svipað fylgi en Píratar mælast með 14,5 prósenta fylgi. Samfylkingin er enn langstærsti flokkurinn og mælist með 27,4 prósent fylgi.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað jafnt og þétt síðustu mánuði en í júní mældist flokkurinn með 18,5 prósent. Flokkurinn hefur hins vegar aldrei mælst með jafn lítið og í nýjustu könnun Prósents eða með aðeins 16,1 prósenta fylgi.
Píratar mælast með 14,5 prósent fylgi en aðrir flokkar mælast með minna en 10 prósent. Vinstri græn og Framsókn mælast bæði með rétt rúmlega sjö prósenta fylgi en samanlagt fylgi stjórnarflokkanna mælist rúmlega 30 prósent samkvæmt könnuninni. Viðreisn fengi tæplega níu prósent yrði gengið til kosninga í dag og Flokkur fólksins 8,5 prósent. Miðflokkurinn mælist með 7,2 prósent fylgi. Sósíalistaflokkurinn mælist með minnsta fylgið eða 2,9 prósent.
Úrtak: 2300 einstaklingar 18 ára og eldri. Fjöldi svara: 1191. Svarhlutfall: 51,8%