• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Bílasala dregst stórlega saman en hreinorkubílum fjölgar verulega

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. ágúst 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Kórónuveiran hefur haft veruleg áhrif á skráningu nýrra fólksbíla hér á landi.  Bílaleigur líkt og ferðaþjónustan í heild hafa glímt við mikinn samdrátt.  Í nokkur ár fór um helmingur nýskráðra fólksbíla til bílaleiga en sú sala hefur hrunið í ár.  FÍB hefur tekið saman tölfræði úr ökutækjaskrá Samgöngustofu um sölu fólksbíla hér á landi eftir orkugjöfum yfir fimm hálfsárs tímabil frá 2018 til júníloka í ár að sögn FÍB.
Árið 2018 voru nýskráðir 17.971 nýir fólksbílar sem er vel yfir meðaltali síðustu ára en metár var í bílasölu 2017 þegar 21.330 fólksbílar voru nýskráðir.  Árið 2019 fór salan niður í 11.700 bíla.  Verulega hefur dregið úr nýskráningum í ár samanborið við síðustu tvö ár.  Fyrstu sex mánuðina í ár var búið að nýskrá 4.193 fólksbíla en talan var komin í 6.155 bíla í gær, 27. ágúst. Samhliða samdrætti hefur nýskráning eftir orkugjöfum breyst mikið. Hlutfall hreinorkubíla í nýskráningum hefur stóraukist á sama tíma og skráning hefðbundinna sprengihreyfilsbíla hefur snarminnkað.
Nýskráning fólksbíla eftir orkugjöfum
Fyrstu sex mánuði ársins 2018 var ríflega 82% nýskráðra fólksbíla bensín- eða dísilknúnir.  Hlutfall nýrra bensín- og dísilbíla var komið niður í 43% af heildarsölunni fyrstu sex mánuðina í ár.  Hreinir rafbílar voru 2,4% af nýskráðum fólksbílum á fyrri helmingi ársins 2018 en 6,6% á seinni helmingi ársins.  Rafbílar voru 5,8% fyrstu sex mánuðina 2019 en fóru í 11,1% á seinni helming ársins. Á fyrri helmingi ársins 2020 var hlutfall rafbíla af nýskráningum komið í 25,5%.  Fyrstu sex mánuðina 2018 voru nýskráðir 284 rafbílar en 1.069 á sama tímabili í ár.  Nýskráning tengiltvinn- og tvinnbíla hefur aukist sem hlutfall af heildarsölu en vegna sölusamdráttar um að ræða svipað marga bíla.
Nýskráning fólksbíla tafla
Mikill samdráttur í nýskráningum er áhyggjuefni en það er óhætt að fagna þeim umskiptum sem hafa orðið varðandi auknar vinsældir hreinorkubíla.  Tesla sem selur bara hreina rafbíla var önnur söluhæsta tegund fólksbíla hér á landi fyrstu sex mánuðina í ár. Undir lok ágúst var Tesla komin í fjórða sætið yfir söluhæstu tegundirnar.  Fram til 27. ágúst í ár var hlutfall fólksbíla sem nýta rafmagn sem orkugjafa, þ.e. hreinir rafbílar, tengiltvinn- og tvinnbílar, um 51% af nýjum bílum.   Ísland er í kjörstöðu varðandi fjölgun rafbíla.  Við búum við umhverfisvæna og sjálfbæra raforkuframleiðslu sem upplagt er að nota til að knýja bíla. Innviðirnir eru að styrkjast og það er þjóðhagslega arðbært fyrir samfélagið að geta nýtt hreina innlenda orku í samgöngum á landi.
Nýskráning fólksbíla

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    22 deilingar
    Share 9 Tweet 6
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?