• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 30. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Málaflokkar fatlaðs fólks og örorkulífeyrisþega eru sveltir þvert á ályktun VG

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 

,,Undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, ættu það að vera hæg heimatökin fyrir VG að koma ályktun landsfundar í framkvæmd“

Öryrkjabandalag Íslands hefur sent Alþingi umsögn sína um fjárlög ársins 2020. Heilt yfir má segja að umsögnin endurspegli þau vonbrigði sem fjárlögin valda öryrkjum. Fjárlög hvers árs skipta gríðarlegu máli fyrir fatlað fólk, enda koma þau meira og minna inn á alla þá málaflokka sem varða þennan fjölbreytta hóp fólks. ÖBÍ telur gríðarlega mikilvægt að lífeyrir almannatrygginga verði hækkaður verulega og unnið skuli að gjaldfrjálsri heilbrigðisþjónustu.

En allir málaflokkar þeir sem varða fatlað fólk og örorkulífeyrisþega eru sveltir, og þrátt fyrir að stjórnvöld tali fjálglega um kaupmáttaraukningu öryrkja og að verulegu fjármagni hafi verið bætt við málaflokka fatlaðs fólks og öryrkja, þá vantar enn stórlega upp á að fólk geti lifað með reisn í íslensku samfélagi.
Í þessu sambandi er þó ánægjulegt að líta til nýsamþykktra ályktana á landsfundi Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, þar sem fundurinn ályktaði nokkuð sterkt um kjör öryrkja, og ekki síst barna þeirra. Í ályktun fundarins um kjör öryrkja kemur fram að: “…þrátt fyrir að nokkuð hafi áunnist við að bæta kjör öryrkja er enn langt í land með að kjör þeirra séu ásættanleg. Nauðsynlegt er að hækka lífeyri, en huga þarf sérstaklega að kjörum þeirra sem ekki hafa neinar aðrar tekjur sér til framfærslu.”

Undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, ættu að vera hæg heimatök fyrir VG að koma ályktun landsfundar í framkvæmd

Undir forsæti Katrínar Jakobsdóttur, formanns VG, ættu það að vera hæg heimatökin fyrir VG að koma ályktun landsfundar í framkvæmd. En fjárlögin bera þess engin merki. Enn eitt árið er örorkulífeyrir aðeins hækkaður til samræmis við vísitölu neysluverðs. Enn eitt árið víkkar gjáin milli lægstu launa og örorkulífeyris, svo að á næsta ári verður örorkulífeyrir 80 þúsund krónum lægri en lámarkslaun. Örorkulífeyrir verður því ekki nema um 76% af lámarkslaunum.
Fjárlagafrumvarpið mismunar því lífeyrisþegum, samanborið við fólk á vinnumarkaði. Þau markmið í áherslum ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, um að fólk skuli lifa innihaldsríku og sjálfstæðu lífi, með tækifærum til þátttöku í samfélaginu til jafns við aðra, virðast því enn aðeins í orði en ekki borði.
Það veldur ÖBÍ einni sérstökum vonbrigðum að sjá að ekki er bætt í fjármagn sem rík þörf er á til að huga sérstaklega að stöðu fatlaðs fólks við alla lagagerð, í samræmi við fullgiltan samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Umsögn ÖBÍ, sem telur 30 síður, má finna og lesa í heild sinni hér.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/10/17/fataekt-folk-a-islandi-sem-bidur-eftir-rettlaetinu-faer-582-kronur/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Salmonella staðfest

    Salmonella staðfest

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Strandveiðibátur sökk úti fyrir Patreksfirði

    16 deilingar
    Share 6 Tweet 4
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Ungar konur réðust á gamla konu og stungu hana og lömdu

    84 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Strandveiðisjómaður lést

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?