• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 18. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tólf leiguíbúðir rísa á þremur dögum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. október 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

 
Tólf leiguíbúðir rísa hratt á tveimur lóðum við Hádegisskarð í Skarðshlíð þessa dagana. Fyrstu íbúðinni var komið fyrir í gær og er gert ráð fyrir að íbúðirnar tólf verði komnar á sinn stað í vikulok. Hafnarfjarðarbær fær íbúðirnar afhentar fullbúnar um miðjan nóvember.

Þessum leiguíbúðunum er ætlað að tryggja tekjulágum einstaklingum og fjölskyldum aðgengi að öruggu húsnæði í langtímaleigu. Skarðshlíð íbúðarfélag hses og Modulus eignarhaldsfélag gerðu með sér samning um uppbyggingu á 12 íbúðum á lóðunum Hádegisskarð 12 og 16 í Skarðshlíð í maí á síðasta ári.
Stofnaðili Skarðshlíðar íbúðarfélags hses. er Hafnarfjarðarbær og er hugmyndafræðin til framtíðar að íbúar sjái sjálfir um stjórn og rekstur félagsins.
Sex íbúðir eru á hvorri lóð og mun húsnæðisskrifstofa Hafnarfjarðarbæjar fá tvær íbúðir af þessum tólf í félagslegt húsnæðiskerfi sveitarfélagsins. „Með þessari framkvæmd erum við að fara nýjar leiðir í þjónustu og verkefnum sveitarfélags til að koma betur til móts við íbúa. Í þessu tilviki er verið að leita leiða fyrir þá sem eru á mörkum þess að vera of tekjuháir fyrir félagslegt húsnæði en samt með of lágar tekjur fyrir hinn almenna leigumarkað. Hérna er verið að bjóða upp á varanlegt húsnæði á mun betra verði en gengur og gerist á markaðnum í dag. Til framtíðar gerum við ráð fyrir að reksturinn verði að fullu sjálfbær og ef vel tekst til þá ætti verkefnið að vera öðrum sveitarfélögum, félagasamtökum og verktökum hvatning til sambærilegra framkvæmda. Við reiknum með að fyrstu íbúarnir flytji inn strax 1. desember“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Umsóknarfrestur um íbúðir rennur út 10. nóvember.
Skarðshlíð íbúðarfélag hses er sjálfseignarstofnun rekin án hagnaðarsjónarmiða sem stofnuð var af Hafnarfjarðarbæ. Félagið hefur þann tilgang að byggja eða kaupa, eiga eða hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra íbúða og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum um almennar íbúðir.
Sjá allar nánari upplýsingar: https://www.hafnarfjordur.is/stjornsysla/frettir/leiguibudir-risa-hratt-vid-hadegisskard

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    89 deilingar
    Share 36 Tweet 22
  • Leigja frá sér á 500.000 kr. en greiða sjálfir 26.000 kr.

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Fíkniefnasali hlær að bönkunum og lánar á betri kjörum

    185 deilingar
    Share 74 Tweet 46
  • Íslendingar í Panama-skjölunum – Aflandsfélög í skattaskjólum?

    132 deilingar
    Share 53 Tweet 33
  • Innflytjendur kosta hundrað milljarða á ári – Opin landamæri Schengen

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?