• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 11. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Geta nóróveirur borist með matvælum?

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. október 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Á veturna má búast við aukningu í nóróveirutilfellum enda er sýkingin nefnd vetrarælupestin á sumum tungumálum (t.d. vinterkräksjuka á sænsku). Helstu einkenni nóróveirusýkingar eru vanlíðan, uppköst, niðurgangur, hiti og kviðverkir.

Veiran er mjög smitandi og örfáar veirur þarf til að valda smiti. Nóróveirur geta borist í matvæli frá einstaklingum sem eru veikir eða hafa nýlega verið veikir af völdum nóróveiru. Dæmi eru um að nóróveirur hafi borist með matvælum hérlendis og erlendis, s.s. frosnum hindberjum, ostrum og mat frá veitingahúsum. Slík smit geta valdið hópsýkingum.

Neysla á frosnum hindberjum olli til dæmis útbreiddri nóróveirusýkingu í Danmörku fyrir nokkrum árum. Í kjölfarið settu Danir reglur um að hita skyldi frosin hindber fyrir neyslu og oft má sjá slíkar leiðbeiningar á umbúðum.

En hvernig er hægt að koma í veg fyrir að veiran berist í matvæli á heimilum, í mötuneytum, veitingastöðum og öðrum matvælafyrirtækjum?

  • Forðast skal framleiðslu, matreiðslu og framreiðslu matvæla á meðan á veikindum stendur og í minnst 48 klst. eftir að einkennin eru yfirstaðin.
  • Þvo hendur fyrir meðhöndlun matvæla.
  • Þvo hendur fyrir borðhald
  • Bjóða upp á möguleika til sótthreinsunar á höndum við hlaðborð.
  • Koma í veg fyrir að handfang áhalda komist í snertingu við matvæli.
  • Matvælafyrirtæki hafi skýrar reglur varðandi veikindi starfsfólks og endurkomu þeirra.

Hægt er að minnka hættu á að Nóróveira berist með matvælum sé þessum leiðbeiningum fylgt.

  • „Komið í veg fyrir smit af nóróveirum“
  • Handþvottur
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    Á ekki fyrir mat fyrir barnið sitt – Einstæð móðir á aðeins 459 krónur

    42 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Kílómetragjald leiði ekki til óhóflegrar skattheimtu

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Loðin svör um 54 milljarða sem fóru í loftlagsmál

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • ,,Aldrei greitt tekjuskatt á Íslandi frá stofnun, frekar en hin sjókvíaeldisfyrirtækin“

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lög samþykkt sem auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda og bæta upplýsingar um leigumarkaðinn

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?