• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Ég tel mun meiri líkur á því að hér stefni í hörð verkafallsátök hjá verkafólki í byrjun marsmánaðar,en að samningar náist''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði á Bylgjunni í gær að kjaraviðræður gengju vel — nema hjá Eflingu og þeim félögum sem hefðu vísað viðræðum til ríkissáttasemjara. Hvers vegna er það? Félagi okkar Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, hefur sent frá sér svar.

              Halldór Benjamín og Vilhjálmur Birgisson

,,Þetta er athyglisverð yfirlýsing hjá framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins að viðræður við Starfsgreinasamband Íslands og Iðnaðarmannafélögin séu nánast komin á lokastig.
Halldór Benjamín viðurkennir þó að viðræðurnar við Verkalýðsfélag Akraness, Grindavíkur, Eflingu og VR séu komnar styttra á veg.
Ástæðan fyrir því hefur ekkert með að félögin vísuðu deilu sinni til ríkissáttasemjara heldur vegna þess að þessi stéttarfélög hafa alfarið hafnað öllum hugmyndum Samtaka atvinnulífsins um að selja kaffitíma launafólks, lengja dagvinnutímabilið með því að dagvinna teljist frá 06:00 til 19:00. Einnig hafa Samtök atvinnulífsins gert kröfu um að uppgjörstímabil á yfirvinnu skuli reiknast á 3 mánaða tímabili.
Þetta þýðir á mannamáli að verkafólk á að kaupa sínar launahækkanir að stórum hluta sjálft með því að hella yfirvinnu yfir á dagvinnu, en rétt er að geta þess einnig SA vil að yfirvinnuálagsprósentan verði 66% af dagvinnu en ekki 80% eins og nú er.
Öllum þessum atriðum hafa Verkalýðfélag Akraness, Grindavíkur, Efling og VR hafnað algerlega, enda stendur ekki til að þessi kjarasamningur byggist á því að launafólk kaupi sínar launabreytingar að stórum hluta sjálft í formi þessara hugmynda sem Samtök atvinnulífsins vilja leggja upp með.
Ég ítreka að ástæða þess að viðræður Verkalýðsfélags Akraness, Grindavíkur, Eflingar og VR séu komnar styttra á veg er vegna þess að þessi félög hafna þessum hugmyndum og eru alls ekki tilbúin að láta Samtök atvinnulífsins leiða sig inn á braut eftirgjafar og linkindar þar sem launafólk á t.d. að selja frá sér áunnin réttindi sem barist hefur verið fyrir í gegnum árin og áratugina, eins og t.d. þeim sjálfsögðu mannréttindum að launafólk eigi rétt á kaffitímum.
Það blasir við að um miðjan þessa mánaðar mun liggja fyrir hvað stjórnvöld ætla að koma með til að liðka fyrir þessum viðræðum sem og hvað Samtök atvinnulífsins verða tilbúin að koma til móts við okkar kröfur.
Ég vil bara vera alveg heiðarlegur með það að ég tel mun meiri líkur á því að hér stefni í hörð verkafallsátök hjá verkafólki í byrjun marsmánaðar, en að samningar náist. Þetta er allavega mitt mat eins og staðan er í viðræðum við Samtök atvinnulífsins þessa stundina. Ég skal líka viðurkenna að ég tel okkur hafa sýnt þessum kjaraviðræðum ótrúlegt langlundargeð, en okkar von er að okkur takist að landa kjarasamningi sem verður okkar fólki til hagsbóta og allt launafólk geti framfleytt sér frá mánuði til mánaðar og haldið mannlegri reisn, ekki bara sumir!
Við leggjum gríðarlega áherslu á að ráðstöfunartekjur lægstu launa dugi fyrir framfærsluviðmiðum sem Velferðaráðneytið hefur gefið út. Því miður er ekki slíku til að dreifa núna og ekki verður gengið frá kjarasamningi nema okkur takist að auka ráðstöfunartekjur umtalsvert.“ Sagði Vilhjálmur Birgisson.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    78 deilingar
    Share 31 Tweet 20
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Salmonella í fæðubótarefni

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?