• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Sunnudagur, 1. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. febrúar 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

112-dagurinn er haldinn um allt land í dag og er sjónum að þessu sinni beint að öryggismálum heimilisins. Aðstandendur dagsins fræða almenning um hvernig má draga úr hættu á slysum og öðrum áföllum á heimilum og hvernig bregðast á við slíkum atvikum. Þetta er gert meðal annars á samfélagsmiðlum.

Stór hluti símtala í neyðarnúmerið 112 á rætur að rekja til slysa og annarra áfalla á heimilum fólks. Fólk verður alvarlega veikt heima eða slasast, börn komast í lyf og önnur hættuleg efni, eldur kemur upp á heimilinu, þjófar láta greipar sópa, svo nokkur dæmi séu nefnd. Í 112-blaðinu sem fylgir Fréttablaðinu í dag er bent á fjölmargt sem unnt er að gera til að fyrirbyggja atvik af þessu tagi og bregðast við þeim, til dæmis með því að læra skyndihjálp, efla fallvarnir og auka eldvarnir og varnir gegn innbrotum.
Í tilefni dagsins efna Neyðarlínan og samstarfsaðilar 112-dagsins til móttöku í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð kl. 16 í dag með svohljóðandi dagskrá: Ávarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra, verðlaun í Eldvarnagetrauninni 2018 afhent og Skyndihjálparmaður Rauða krossins útnefndur. 
112-dagurinn er samstarfsverkefni stofnana og félagasamtaka sem annast margvíslega neyðarþjónustu, almannavarnir og barnavernd í landinu. Þau eru: 112, Barnaverndarstofa, Embætti landlæknis, Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslan, Landspítalinn, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Mannvirkjastofnun, Rauði krossinn, Ríkislögreglustjórinn, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins, Vegagerðin og samstarfsaðilar um allt land.
112 er samræmt neyðarnúmer Evrópu og er dagurinn haldinn víða um álfuna til að minna á að aðeins þarf að kunna þetta einfalda númer til þess að fá aðstoð í neyð. Markmiðið með 112-deginum er að kynna neyðarnúmerið 112 og starfsemi aðilanna sem tengjast því, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hún nýtist almenningi. Markmið dagsins er enn fremur að efla samstöðu og samkennd þeirra sem starfa að forvörnum, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfingar.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    ,,Þess vegna sit ég hér og bölva“

    473 deilingar
    Share 189 Tweet 118
  • ,,No borders hafa flúið“ – Þögn vegna ótta : Umræða sem íslendingar þora ekki að taka

    20 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Græðgin er komin út fyrir öll mörk – Launaþjófnaður?

    31 deilingar
    Share 12 Tweet 8
  • Gay Pride og Menningarnótt færð yfir á 17. júní

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Covid-bóluefnin eru þau hættulegustu sem finnast segir hjartalæknir

    88 deilingar
    Share 35 Tweet 22
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?