Viðræðunefnd SGS falið að meta hvort vísa eigi kjaradeilunni til ríkissáttasemjara
Samninganefnd Starfsgreinasambandsins fundaði síðastliðinn fimmtudag, 14. febrúar, um stöðuna í kjaraviðræðum og næstu skref.
Á fundinum var samþykkt einróma umboð til handa viðræðunefnd SGS þess efnis að vísa kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara á næstu dögum ef nefndin telur ástæðu til. Það eru væntingar um að fram komi hugmyndir eða tillögur í framhaldi af viðræðum forystu ASÍ og stjórnvalda á morgunn, þriðjudag.
Viðræðunefnd SGS hefur verið boðuð til fundar síðdegis þann dag.
Umræða