• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Orð gegn orði og gögnum – Starfsmannaleiga og starfsmenn deila enn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
9. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Í DV í dag er rætt við Romeo Sarga, frá Rúmeníu en hann hefur borið fyrirtækið Menn í vinnu ehf. þungum sökum er varða launamál ofl. Forsvarmaður fyrirtækisins, Halla Rut, hefur birt gögn eins og launaseðla, bankayfirlit og staðfestingu frá Arionbanka um að  fyrirtækið hafi lagt inn töluverðar upphæðir inn á reikning starfsmannsins og að engar bakfærslur af reikningnum af hálfu fyrirtækisins hafi átt sér stað skv. skjali frá Arionbanka.
Blaðamaður DV hefur farið yfir málið í langri grein í blaðinu í dag og segir að lokum ,,Það sem blasir við blaðamanni eftir samtal við fyrirsvarsmann starfsmannaleigunnar og Romeo Sarga er að mikið af þessum vandamálum hefði verið hægt að fyrirbyggja með betra upplýsingaflæði, ef starfsmannaleigan hefði til dæmis haft túlk í vinnu eða nýliðafræðslu þar sem meðal annars launaseðlar væru útskýrðir fyrir starfsmönnum. Ásakanirnar á hendur starfsmannaleigunni eru þó meiri og stærri en bara varðandi launin ein og sér. Starfsmenn halda því fram að þeir hafi verið beittir ofbeldi af aðilum á vegum leigunnar, hafi verið sópað upp í flugvél og hent heim ef þeir kvörtuðu og að þeir hafi upphaflega verið fengnir til landsins með fölskum loforðum, hálfum sannleik.“
Líklega mun ágreiningurinn að hluta eða í heild enda fyrir dómstólum en fyrirtækið hefur fengið Jóhannes Ólafsson lögmann hjá Pacta til þess að reka málið fyrir sig. Í dag tjáir forsvarsmaður fyrirtækisins, Halla Rut sig um málið og birtir m.a. gögn í því:

Skjáskot úr frétt DV

,,Í dag er viðtal í DV við grátmanninn frá Rúmeniu, Romeo Sarga. Hann er nú aðeins búinn að breyta framburði sínum blessaður. Nú fékk hann sko stundum 100.000 kall útborgað en áður sagðist hann aldrei hafa fengið krónu. Hér eru skjáskot frá frétt Stöð2 þann 7. febrúar og svo fyrirsögn DV í dag. Og svo læt ég fylgja skjal frá Arion banka þar sem sést allt sem hann fékk borgað.“ Segir Halla Rut.
,,VIÐ GREIDDUM ÖLLUM MÖNNUNUM 
og það vita þau öll. Og grátmennirnir hlægja og njóta ávaxtanna á meðan þeir gefast.
Allir sem fengu bréf um fyrirhugaða lögsókn frá Menn í vinnu ehf vissu strax eða mjög snemma að mennirnir lugu en þrátt fyrir það þá stigu þeir ekki til baka en héldu bara áfram að segja ósatt um okkur og áfram að moka peningum frá okkar sameiginlegu sjóðum í fólkið.

Hér fylgir með bréf sem var sent á Maríu Lóu hjá ASI þar sem dæmi eru tekin um hvernig hún sakar okkur um hin og þessi alvarlegu brot sem liggur margra ára fangelsisdómur fyrir. Hún sakar okkur einnig um að ræna peningum út af reikningum starfsmanna og tekur mitt nafn þar sérstaklega fram. Þetta er auðvitað galið en hún staðfestir þetta oftar en einu sinni og segist hafa séð þetta á þeirra yfirlitum á launareikningum.
Ég veit ekki hvað ég hef gert þessari konu enda aldrei hitt hana. Ég veit ekki hvað henni gengur til að vilja rústa lífi mínu og fjölda fólks í kringum mig. Ég veit ekki hvaðan þetta ofsalega hatur og reiði kemur í minn garð. Ég veit ekki afhverju hún er tilbúin að ljúga í fjölmiðlum og í skrifum sínum þannig að fjöldi fólks missti vinnuna sína og fullt af fólki hlaut skaða af. Þetta gerir hún í krafti stöðu sinnar sem gerir málið ennþá alvarlegra.“
,,Hér eru myndir af bréfinu og einnig mynd af bréfi frá Arion banka. 
HÉR STAÐFESTIR ARION BANKI AÐ GRÁTMAÐURINN ÚR FRÉTTUM FÉKK BORGAÐ OG ÞAÐ VORU ALDREI TEKNAR GREIÐSLUR AF REIKNING HANS AFTUR TIL BAKA.“

,,Allir eru búnir að vera með allar sannanir í 2 vikur eða meira.Ég skora á Maríu Lóu að stíga fram og biðjast afsökunar. Biðja bæði mig, fyrirtækið og allt fólkið, og fjölskyldur þeirra, sem missti vinnuna sína einnig afsökunar. ——en ég veit að hún gerir það ekki.
Samviskan virðist engin og það virðist öllum sem á þessari vegferð eru vera sama um sársaukann og tjónið sem þau hafa valdið fullt af venjulegu fólki og fyrirtæki sem var í góðum rekstri og hugsaði vel um fólkið sem hjá því vann.“ Segir Halla Rut.


 
Viðar Þor­steins­son, fram­kvæmda­stjóri Efl­ing­ar, seg­ir er­indi Manna í vinnu ekki hafa nein áhrif á aðgerðir Efl­ing­ar vegna kjara verka­manna sem leituðu til stétt­ar­fé­lags­ins. https://www.mbl.is/frettir/innlent/2019/02/28/segir_hotun_um_malsokn_engin_ahrif_hafa/?fbclid=IwAR3vmQJtLP9BIUwDPacOPBCXA5_2PwdtT8vaxawJSOEKyOjh6Hpu6_T3exk

F

https://www.dv.is/frettir/2019/2/16/gratandi-rumeninn-med-440-thusund-manudi-med-taepar-700-thusund-kronur-inn-bankareikning/?fbclid=IwAR3aLlNFdC1N8iLbPE3zFENyF7W4Xu32DQB1I3EowyTjRvcpkSg7SJNnMf0
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    66 deilingar
    Share 26 Tweet 17
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?