• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 14. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Karl Gauti Hjaltason segir að sjúkraflutningum á Suðurlandi hafi fjölgað um 40% á s.l. fimm árum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
20. mars 2019
in Fréttir, Innlent
A A
0

Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins

,,Sjúkraflutningar á Suðurlandi var efni ræðu minnar í dag: Ég ætla að gera að umtalsefni mínu í dag stöðu sjúkraflutninga almennt og sérstaklega á Suðurlandi.
Aðalstarfsstöð sjúkraflutninga Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er á Selfossi. Starfsstöðvarnar eru fimm og sinna gríðarlega stóru landsvæði sem er um 30.000 km² og nær allt frá Hellisheiði í vestri að Höfn í Hornafirði í austri. Stofnunin hefur til umráða tíu sjúkrabíla sem staðsettir eru á Selfossi, í Rangárþingi, á Vík, á Klaustri og í Vestmannaeyjum.
Auk þess að sinna íbúum Suðurlands hefur ferðamannastraumur um Suðurlandið aukist mjög, auk þess sem stór sumarhúsabyggð er á landsvæðinu.

Á síðustu fimm árum hefur sjúkraflutningum á svæðinu fjölgað um 40%. Á árinu 2018 fóru sjúkraflutningamenn á Suðurlandi í tæplega 4.100 sjúkraflutninga, þar af 1.714 forgangsútköll.

Nú nýverið var ákveðið af sparnaðarástæðum að fara í breytingar á mönnun í sjúkraflutningum þar sem sólarhringsvakt breyttist í bakvaktir sjúkraflutningsmanna á nóttunni í Rangárþingi.

Það vita allir sem búið hafa við bakvaktir að viðbragðið er seinna á ferðinni og leiðir til skerðingar á þjónustu og þar að auki er 24 tíma vakt á Hvolsvelli gríðarmikill stuðningur fyrir starfsstöðvarnar fyrir austan Hvolsvöll þar sem mörg alvarleg slys hafa orðið að undanförnu.
Það er einnig staðreynd að engin sjúkrabifreið í fyrstu útkallslínu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands er ekin undir 200.000 km. Einhverjir bílar eru eknir á fjórða hundrað þúsund km svo ástandið er orðið vægast sagt alvarlegt.
Í þessu ljósi er alvarlegt að enn hefur útboð vegna fyrirhugaðra kaupa á sjúkrabifreiðum verið frestað. Frestur átti að vera til 7. febrúar en því var frestað til 13. mars. Nú hefur því verið frestað fram á haustið. Ég tel nauðsynlegt að við styðjum miklu betur við heilbrigðisstofnanir úti á landi.“ Sagði Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Miðflokksins.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • ,,Geirfinnur var myrtur í bílskúrnum heima hjá sér – Vitni horfði á drápið“

    223 deilingar
    Share 89 Tweet 56
  • Helgi Pétursson látinn

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Eftirlýst kona handtekin

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • ,,Það er búið að ákveða ofurskatta á bílaumferð í borginni“ segir heimildarmaður í innsta hring

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?