• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Svartasti dagurinn í sögu landsins''

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
2. september 2019
in Innlent
A A
0

 

,,Gullæðið er þegar hafið“

Þór Saari skrifar um Orkupakka 3

Verði svo kallaður Orkupakki 3 samþykktur á Alþingi í dag mun þetta verða einn svartasti dagurinn í sögu landsins þegar kemur að auðlindanýtingu og arðráninu sem fylgir í kjölfarið.
Vissulega leggur þessi löggjöf ekki skyldur á stjórnvöld að leggja til landsins sæstreng (það er og hefur alltaf verið „strámaður“ OP3 sinna), en hún leggur augljóslega þær skyldur á stjórnvöld að standa ekki í vegi fyrir slíkum áformum. Og ekki bara það, heldur verður íslenskum stjórnvöldum skylt að greiða fyrir slíkum áformum. Þetta er ótvírætt og stendur skýrum stöfum í 8. grein kafla laganna um þjóðréttarlegar skuldbindingar Íslands.

Að því sögðu, þá er eitt haldreipi OP3 hópsins að slíkur strengur þurfi a.m.k. 1.200 MW af orku til að hann borgi sig og slíkt magn raforku sé ekki í boði. Í því samhengi bendi ég á lokaskýrslu Rammaáætlunar 3, þar sem fram kemur að þeir virkjanakostir sem Rammaáætlun 3 hefur fjallað um (83 virkjanir), eru með alls 5.508 MW af orku sem gætu framleitt sem svarar 40.051 GW stundum af rafmagni á ári. Af þessari tölu eru 19 virkjanir í nýtingarflokki upp á 1.466 MW (11.059 GWs á ári). Í biðflokki eru 38 virkjanir með 2.037 MW (13.376 GWs á ári) og í verndarflokki eru 26 virkjanir upp á 2.005 MW (15.616 GWs á ári).
Rétt er að minna á að verndarflokkurinn, heitandi þessu fallega nafni, hefur nákvæmlega ekkert verndargildi, þar sem ekki eitt einasta svæði í þeim flokki hefur verið friðað og Orkustofnun lítur því áfram á þær virkjanir sem virkjanakosti.
Þessi dagur mun því líklega verða sá svartasti sem íslensk náttúra lifir, því það er augljóst af öllum þeim fjölda orkufyrirtækja í einkaeigu sem hafa verið stofnuð nýlega, að gullæðið er þegar hafið. Vesalings Íslensk náttúra segi ég nú bara, að þurfa að burðast með þessa þjóð.
https://gamli.frettatiminn.is/2019/08/29/skilar-orkupakki-3-625-milljonum-i-vasa-utanrikisradherra/
https://gamli.frettatiminn.is/2019/09/01/motmaeli-gegn-orkupakka-3-a-austurvelli/
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?