• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 4. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Forsetaframbjóðandi ætlar að berjast gegn spillingu og standa með þjóðinni

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
23. apríl 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ræða forsetaframbjóðandans er hér að neðan

,,Það er mikill misskilningur að hlutverk forseta Íslands einskorðist við að brosa framan í erlenda erindreka og flytja ávarp við hátíðleg tilefni. Embættið á alls ekki að vera til skrauts heldur á forsetinn að vinna með virkum hætti í þágu þjóðarinnar og leita allra leiða við að þjónusta hana og styðja. Þjóðin er hér algert lykilatriði en hvorki Alþingi né aðrir embættismenn eiga nokkurn tímann að vera teknir fram fyrir hag hennar enda eru þeir einnig í þjónustuhlutverki gagnvart henni.“ Segir Guðmundur Franklín Jónsson, nýr forsetaframbjóðandi.

Það þarf að breyta hugsunarhættinum á Íslandi

,,Það þarf að breyta hugsunarhættinum á Íslandi því allt of lengi hefur það viðgengist að spillingin fái að grassera og ráðamenn standi aðgerðalausir hjá. Þjóðin, fólkið mitt og börnin mín, hefur ítrekað þurft að kyngja því að stórar upphæðir séu hafðar út úr þjóðarbúinu. Okkur hefur svo liðið eins og við getum ekkert gert, sama hvað við kjósum þá endi þetta alltaf eins.
Þessu skulum við breyta. Við þurfum ekki að sætta okkur við þetta. Það er til fólk sem styður ekki spillingu og mun ekki sætta sig við hana. Það er til fólk sem er tilbúið til að breyta þessu og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að kollvarpa þessum illu öflum. Ég er einn af þeim. Ég get ekki horft upp á þetta lengur og ég segi hér með spillingunni stríð á hendur.
Ég heiti því og legg við drengskap minn að verði ég forseti mun orkupakki fjögur og fimm ekki fara í gegnum mig heldur fær þjóðin að kjósa um þá. Eins heiti ég því að ESB verði aldrei samþykkt án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég ætla mér að berjast fyrir þjóðina og hætta ekki fyrr en þjóðin fær að eiga sínar auðlindir og sinn auð sjálf. Ég ætla að tryggja að hún sé vel upplýst í öllum málum og fái að taka sem mestan þátt í málefnum sem hana varðar.
Mitt framboð er gegn spillingu, með auknu gagnsæi, með beinu lýðræði og fyrir þjóðina. Þetta er það sem ég stend fyrir sem forsetaframbjóðandi og sem manneskja.“
Gleðilegt sumar!  Guðmundur Franklín Jónsson,  viðskipta- og hagfræðingur
https://www.facebook.com/gundifranklin/videos/242883557076378/
https://gamli.frettatiminn.is/gudmundur-franklin-jonsson-bydur-sig-fram-til-forseta-islands/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    64 deilingar
    Share 26 Tweet 16
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    40 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?