Fram kemur á vef Lögreglu að sautján ára piltur var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 28. maí, á grundvelli almannahagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á mjög alvarlegri líkamsárás í Breiðholti í síðustu viku. Pilturinn er vistaður á viðeigandi stofnun.
Rannsókn málsins miðar vel.
Umræða