• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Félag prófessora við ríkisháskóla mótmælir harðlega pólitískum afskiptum fjármálaráðherra af ráðningarmálum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
16. júní 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0
Yfirlýsing stjórnar Félags prófessora við ríkisháskóla vegna ráðningar ritstjóra fræðitímaritsins Nordic Economic Policy Review

Þorvaldur Gylfason, prófessor

Vísindastarf grundvallast á frelsi vísindamanna til að velja sín viðfangsefni og rannsaka þau af hlutlægni með viðurkenndum þekkingaraðferðum. Skipulögð gagnrýni gagnvart eigin niðurstöðum og annarra er órjúfanlegur hluti af nálgun vísindanna. Hæfni einstaklinga til starfa á vísindalegum vettvangi, þar með talið ritstjórnarstarfa, ber einkum að meta útfrá þekkingu, reynslu og árangri þeirra í vísindum og fræðum.
Vísindamenn geta vissulega verið virkir þátttakendur á ýmsum sviðum samfélagsins, þar með talið á vettvangi stjórnmálanna, og í ýmsum tilvikum er virk samfélagsþátttaka þeirra ávinningur fyrir vísindastarfið um leið og vísindastarfið færir samfélaginu margháttaðan ávinning í formi nýrrar þekkingar og bættra vinnubragða.
Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor er í hópi afkastamestu vísindamanna hérlendis og nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín. Hann hefur samið og ritstýrt, ýmist einn eða með öðrum, alls 20 bókum á ensku, íslensku og sænsku, og er auk þess höfundur mikils fjölda vísindaritgerða um hagfræði, efnahagsmál og stefnumótun í innlendum og erlendum vísindatímaritum og fræðilegum bókaköflum. Þorvaldur hefur umfangsmikla reynslu af vísinda- og sérfræðistörfum innan og utan háskóla og hefur meðal annars verið ritstjóri fræðitímaritsins European Economic Review, aðstoðarritstjóri tímaritsins Macroeconomic Dynamics, og setið í ritstjórnum tímaritanna Scandinavian Journal of Economics, og Japan and the World Economy.
Nordic Economic Policy Review er fræðitímarit gefið út af Norrænu ráðherranefndinni. Tilgangur þess er að gera hagfræðirannsóknir aðgengilegar stjórnvöldum í tengslum við stefnumótun, jafnframt því að miðla norrænni þekkingu og reynslu af hagstjórn og efnahagsmálum til umheimsins. Áform í stýrihópi fræðitímaritsins, um að Þorvaldur tæki að sér ritstjórn þess, byggðu á mati á hinum mikla árangri hans í vísindastarfi, en vísindastarf Þorvalds fellur innan efnissviðs tímaritsins. Andstaða og synjun íslenska fjármála- og efnahagsráðuneytisins á ráðningu Þorvalds, eftir að honum hafði verið boðið starfið, byggðist að sögn ráðuneytisins á því að hann væri of pólitískt virkur til að taka að sér ritstjórnina.
Félag prófessora við ríkisháskóla mótmælir harðlega hinum pólitísku afskiptum íslenska fjármála- og efnahagsráðuneytisins af ráðningarmálum tímaritsins. Þessi afskipti skortir málefnalegan grundvöll og afhjúpa skilningleysi á vísindastarfsemi. Þau setja hið norræna tímarit niður og eru ráðuneytinu til álitshnekkis. Íslenskt samfélag þarf síst á því að halda að stjórnvöld leggi stein í götu vísindamanna sem falast er eftir til starfa í krafti þekkingar sinnar.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    214 deilingar
    Share 86 Tweet 54
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    28 deilingar
    Share 11 Tweet 7
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?