Meðalverð á norsk-íslenskri síld til vinnslu og bræðslu var að meðaltali 128% hærra í Noregi en á Íslandi á tímabilinu 2012 til 2019, að því er fram kemur í tölum sem birtar hafa verið á vef Verðlagsstofu skiptaverðs. Minnsta frávikið á tímabilinu var árið 2019 þegar meðalverð var 51% hærra í Noregi en á Íslandi, en mesti munurinn var árið 2015 þegar verð var 186% hærra í Noregi. Þetta kemur fram í nákvæmri og greinagóðri úttekt í sérblaði Mbl. 200 mílum.
Þar segir jafnframt: ,,Er þetta í mikilli andstöðu við muninn á afurðaverði við útflutning, en þá er munurinn mun minni. Verðlagsstofa kveðst hafa ákveðið að taka sérstaklega til skoðunar uppsjávarverð í Noregi „í ljósi umræðu í samfélaginu um verð á uppsjávarfiski, ásamt þeim umkvörtunum sem Verðlagsstofu hefur borist.“
Norsk-íslensk síld – Hráefniog afurðir: Verðsamanburður milli Íslands og Noregs
Glataðir milljarðar fyrir sjómenn og þjóðfélagið? – Fara fram óháða rannsókn á Íslenskum sjávarútvegi
https://gamli.frettatiminn.is/glatadir-milljardar-fyrir-sjomenn-og-thjodfelagid-fara-fram-ohada-rannsokn-a-islenskum-sjavarutvegi/
Umræða