• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 25. júní 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Efnahagssamráð Íslands og Bandaríkjanna fest í sessi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
27. október 2020
in Erlent, Fréttir, Innlent
A A
0
Efnahagslegar afleiðingar kórónuveirufaraldursins og vegabréfsáritanir fyrir íslenska atvinnurekendur og fjárfesta voru á meðal umræðuefna á efnahagssamráðsfundi Íslands og Bandaríkjanna sem fram fór í dag. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra segir að efnahagssamráð ríkjanna sé þegar farið að bera ávöxt.  Þetta er í annað skiptið sem efnahagssamráðið fer fram en ákveðið var að setja það á fót á fundi þeirra Guðlaugs Þórs og Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Reykjavík í febrúar í fyrra . Upphaflega stóð til að halda fundinn í Washington í vor en vegna COVID-19 farsóttarinnar var ekki unnt að halda hann fyrr en í dag og þá í gegnum fjarfundarbúnað.
Á fundinum meðal annars rætt um um efnahagslegar afleiðingar heimsfaraldursins, vegabréfsáritanir fyrir íslenska atvinnurekendur og fjárfesta, kerfisbundna skimun á erlendum fjárfestingum og vernd mikilvægra innviða.  Þá var á fundinum undirritað sameiginlegt minnisblað um áframhaldandi samvinnu á ýmsum sviðum á þessum vettvangi og festa samráðið í sessi þannig að það verði eftirleiðis haldið árlega.
„Bandaríkin eru okkar mikilvægasta viðskiptaland og það hefur líklega aldrei verið mikilvægara en nú að styrkja sambandið vestur yfir haf. Áþreifanleg staðfesting á að nánari samvinna sé farin að skila árangri er Íslandsfrumvarpið svonefnda um sérstakar vegabréfaáritanir fyrir íslenskt viðskiptafólk í Bandaríkjunum. Ég er bjartsýnn á að fleiri brýr verði byggðar á næstu misserum til að efla viðskipti á milli þessara vinaþjóða. Í því sambandi skiptir miklu máli að efnahagssamráðið hefur nú verið fest í sessi þannig að það verður haldið á hverju ári,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
„Til viðbótar við þennan formlega vettvang ríkjanna hef ég auk þess beitt mér fyrir að efla enn frekar tengslin við Bandaríkjaþing og styrkja samráðið við embætti viðskiptafulltrúa Bandaríkjaforseta [USTR]. Þá höfum við lagt mikla áherslu á að að stækka það tengslanet sem íslensk stjórnvöld og útflutningsgreinar hafa í Bandaríkjunum. Þetta hefur gert okkur kleift að taka upp brýn hagsmunamál milliliðalaust, ný og nærtæk dæmi um slíkt eru viðbrögð við heimsfaraldrinum og grálistun FATF.“
Manisha Singh, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna á sviði efnahags- og viðskiptamála, leiddi fundinn af hálfu Bandaríkjamanna og Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fór fyrir íslensku sendinefndinni. Auk þeirra sátu fulltrúar utanríkis-, viðskipta- og fjármálaráðuneytis Bandaríkjanna auk bandaríska sendiráðsins í Reykjavík fundinn en frá Íslandi tóku þátt fulltrúar utanríkis-, forsætis- og atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, sendiráðs Íslands í Washington, auk fulltrúa Íslandsstofu. Þessi vettvangur gefur tækifæri til að ræða á breiðum grundvelli mál sem varða efnahags og viðskiptasamskipti landanna.

  • Frá efnahagssamráðinu í dag. Frá vinstri: Kristín A. Árnadóttir sendiherra, María Mjöll Jónsdóttir, skrifstofustjóri alþjóða- og þróunarsamvinnuskrifstofu, Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu og Jón Erlingur Jónasson, skrifstofustjóri skrifstofu tvíhliða samstarfs og svæðisbundinna málefna
  • Manisha Singh, aðstoðarráðherra í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna á sviði efnahags- og viðskiptamála, leiddi fundinn af hálfu Bandaríkjamanna.
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    Auglýsingaherferð SFS (LÍÚ) hefur engu skilað – Hundruðir milljóna í vaskinn

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Leigja tonnið á 500.000 kr. og greiða 0 kr. í auðlindagjald og 0 kr. í vsk

    142 deilingar
    Share 57 Tweet 36
  • Spillingin þrífst hjá Sjöllunum – Hagsmunir kvótaerfingja þingmanna varðir á Alþingi

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Sigurður Fannar Þórsson dæmdur í 16 ára fangelsi fyrir manndráp á 10. ára dóttur sinni.

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Lýst var eftir Hlyni Gíslasyni

    68 deilingar
    Share 27 Tweet 17
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?