• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Minnihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggst alfarið gegn ákvörðun meirihlutans um að selja hlut bæjarbúa í HS Veitum

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. október 2020
in Fréttir, Innlent
A A
0

Telja meirihlutann skorta lýðræðislegt umboð fyrir sölunni

Fréttatilkynning frá minnihlutanum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar
Minnihlutinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar leggst alfarið gegn ákvörðun meirihlutans um að selja hlut bæjarbúa í HS Veitum. Afstaða okkar byggir á eftirfarandi:
  1. Við teljum ótækt að Hafnarfjarðarbær selji hlut sinn í sterku fyrirtæki á einokunarmarkaði. Það er skylda okkar að standa vörð með íbúum og kaupendum þjónustunnar. Einkavæðing innviðaþjónustunnar sem ekki lýtur samkeppnislögmálum endar yfirleitt ekki vel.
  2. Við teljum tímasetningu sölunnar einkennilega. Ákvörðun um sölu hlutarins var tekin af meirihlutanum í apríl. Enn liggur ekki fyrir umfang fjárhagsvanda sveitarfélagsins vegna Covid-19 og hvort salan reynist nauðsynleg af hans sökum. Hér er verið að nota Covid19 faraldurinn sem skálkaskjól einkavæðingar.
  3. Við teljum meirihlutann skorta lýðræðislegt umboð fyrir sölunni. Það að óska ekki eftir áliti bæjarbúa, sem er hinn raunverulegi eigandi hlutarins, er ólýðræðislegt þegar um svo stóra ákvörðun er að ræða. Ákvörðun sem enginn stjórnmálaflokkur hefur haft á stefnuskrá sinni í áraraðir.
  4. Við teljum að hér sé verið að selja á undirverði þar sem augljósir vaxtamöguleikar HS Veitna eru ekki teknir inn í verðmætamat fyrirtækisins. Hér er verið að gefa frá sér mikil verðmæti til framtíðar.
  5. Ekki er hægt að leggja að jöfnu eignarhald lífeyrissjóða og sveitarfélaga í innviðum. Lífeyrissjóðir og aðrir fagfjárfestar vinna að því að ávaxta fé sitt, sú ávöxtun mun koma úr vasa neytenda á formi aukinna arðgreiðslna út úr veitunum.
  6. Sá lagarammi sem stuðst er við þegar kemur að því að ákvarða verð á þjónustu HS Veitna er í besta falli óljós og er alls ekki sá varnagli þegar kemur að ákvörðun verðs til neytenda sem meirihlutinn lætur í veðri vaka.
  7. Bæjarfulltrúum Hafnarfjarðar hefur kerfisbundið verið haldið frá ferlinu. Ákvarðanir og umræður hafa farið fram í bæjarráði þar sem einungis hluti bæjarfulltrúa og flokka í bæjarstjórn hefur rödd. Þetta mál er þannig vaxið að það þarf breiða og djúpa umræðu í bæjarstjórn fyrir opnum tjöldum.
  8. Við teljum að ferlið allt sé án heimildar þar sem bæjarstjórn gaf aldrei formlegt leyfi fyrir söluferlinu, salan var samþykkt þegar söluferlið var yfirstaðið. Leyfið var gefið eftir á. Það eru í besta falli óvönduð vinnubrögð.

Friðþjófur Helg Karlsson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Árni Rúnar Þorvaldsson, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Jón Ingi Hákonarson,  bæjarfulltrúi Viðreisnar
Guðlaug Svala Steinunnar Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi Bæjarlistans
Sigurður Þ. Ragnarsson, bæjarfulltrúi Miðflokksins
https://gamli.frettatiminn.is/thetta-eru-med-doprustu-timum-i-sogu-hafnarfjardar/
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?