• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 17. nóvember 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tilkynning frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og lögreglustjóranum á Austurlandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. janúar 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0

Áfram er í gildi óbreytt rýming á því svæði sem kynnt var fyrir áramót

  • Óbreytt rýmingarsvæði á Seyðisfirði.
  • Áfram í gildi hættustig almannavarna á Seyðisfirði.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, lögreglustjórinn á Austurlandi ásamt vettvangsstjórn og ráðgjöfum fundaði í gærmorgun vegna hreinsunarstarfs á Seyðisfirði.  Þar ganga yfir hlýindi og því verður ekki unnið að fullum krafti innan þess svæðis sem stóra skriðan féll á 18. desember síðastliðinn.  Hreinsunar- og viðgerðarstarf verður unnið utan þess svæðis og búið í haginn vegna vinnu komandi viku.  Þá er veðurútlit gott og má búast við að vinna fari af stað af fullum krafti í dag.

Þrátt fyrir að upptakasvæði skriðanna sé ekki innan rýmingarreits, þá er áréttað að þar getur verið hættulegt að fara um vegna lausra jarðlaga, skriðubrúna og sprungna sem hafa myndast.

Fylgst verður með aðstæðum, farið upp í Botnabrún og sprungur skoðaðar, og gerðar mælingar á hreyfingu jarðlaga. Engin hreyfing mældist í gærmorgun en hún hefur verið lítil sem engin undanfarna viku.

Áfram er í gildi óbreytt rýming á því svæði sem kynnt var fyrir áramót.

Þjónustumiðstöð almannavarna er opin í Herðubreið á Seyðisfirði í dag. Einnig er hægt að senda inn fyrirspurnir á netfangið sey@logreglan.is og hringja í 839-9931 utan opnunartíma. 

Mynd frá hreinsunarstarfi tekin 29. desember s.l.

Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Nýtt flugfélag í Keflavík

    Nýtt flugfélag í Keflavík

    83 deilingar
    Share 33 Tweet 21
  • ,,Morðinginn er enn á lífi og það er vitað hver hann er“

    87 deilingar
    Share 35 Tweet 22
  • Var Eggert myrtur? – Dularfullt andlát

    49 deilingar
    Share 20 Tweet 12
  • Eftirlýst kona handtekin

    98 deilingar
    Share 39 Tweet 25
  • Egill greiddi 17.776 krónur fyrir klukkustund í bílastæðagjald

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?