• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 20. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

ÁRÍÐANDI – Landspítali starfar á hættustigi frá miðnætti 24. mars

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
ÁRÍÐANDI TILKYNNING FRÁ VIÐBRAGÐSSTJÓRN OG FARSÓTTANEFND LANDSPÍTALA

LANDSPÍTALI Á HÆTTUSTIG FRÁ MIÐNÆTTI 24. MARS

Í ljósi samfélagssmita COVID-19 verður Landspítali færður af óvissustigi á hættustig núna á miðnætti, miðvikudaginn 24. mars. Í hættustigi felst að orðinn atburður kallar á að starfað er eftir viðbragðsáætlun Landspítala vegna farsóttar. Viðbragðsstjórn og farsóttanefnd koma saman reglulega og eftir þörfum eftir því sem atburðum vindur fram.

Á fundi viðbragðsstjórnar og farsóttanefndar var ákveðið að grípa til eftirfarandi ráðstafana sem gilda frá miðnætti í kvöld, 24. 03. 2021, og þar til annað verður ákveðið.

SJÚKLINGAR OG GESTIR

  1.  Heimsóknir takmarkast við einn gest á dag til hvers sjúklings. Hámarksdvöl er ein klukkustund. Brýnt er að heimsóknargestir viðhafi persónulegar sóttvarnir, noti andlitsgrímur, virði fjarlægðarmörk (2 metra) og séu fullvissir um að þeir hafi engin einkenni sem samrýmst geta einkennum COVID-19.
  2.  Á dag- og göngudeildum og öðrum meðferðarsvæðum gilda reglur um hámarksfjölda í rými (10 manns) og eru sjúklingar beðnir að kynna sér aðstæður á þeim deildum sem þeir eiga erindi á.
  3.  Ekki er gert ráð fyrir fylgdarmönnum með sjúklingum sem leita meðferða á dag- og göngudeildum á spítalanum, nema í sérstöku samráði við viðkomandi deildir.
  4.  Sé flutningur sjúklings á aðra stofnun fyrirhugaður skal taka af honum sýni áður en flutningur fer fram.

STARFSFÓLK

Nú liggur fyrir að næstu daga verður unnt að hefja bólusetningu 2.000 starfsmanna með bóluefni Pfeizer. Starfsfólk mun fá boð í bólusetningu í farsíma sína. Munu þá ríflega 90% starfsfólks spítalans hafa hafið bólusetningu.

Starfsfólk er beðið að huga sérstaklega að persónulegum sóttvörnum, notkun andlitsgríma alltaf og alls staðar og virða fjarlægðarmörk og fjöldatakmarkanir í kaffistofum og matsölum spítalans. Áréttað er að reglur gilda um allt starfsfólk, bólusett jafnt sem óbólusett, sem og aðra þá sem hafa mótefni gegn COVID-10

  1. Því er beint til starfsfólks að sinna vinnu sinni í fjarvinnu, sé þess nokkur kostur, í samráði við sína stjórnendur.
  2. Fundir skulu vera á fjarfundaformi.
  3. Starfsfólk er eindregið hvatt til að forðast ferðalög næstu vikur og gæta fyllstu varúðar innan og utan vinnustaðar.
  4. Verði starfsmaður var við minnstu einkenni skal hann óska eftir sýnatöku hjá starfsmannahjúkrunarfræðingi (starfsmannahukrun@landspitali.is). Þetta gildir einnig um bólusetta starfsmenn.
  5. Kaffistofur starfseininga fara aftur í fyrra horf, fjöldi takmarkast af fjarlægðarmörkum – miðað er við 2 metra
  6. Taka skal sýni hjá sjúklingum sem flytjast á milli stofnana
  7. Gert er ráð fyrir breytingum á framleiðslu matar í matsölum og er starfsfólk beðið um að fylgjast með tilkynningum og fylgja fyrirmælum í matsölum.
Umræða
Share6Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Sala ríkisins á Íslandsbanka og erindi Arion banka um sameiningu

    Fjármálaráðherra vill að HS Orka, Bláa Lónið ofl. greiði varnargarða

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Meint kynferðisbrot: ,,Sýknaður af ákæru og tilhæfulausum ásökunum“

    13 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Andrew handtekinn

    8 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Lýsa yfir stuðningi við vísitölutengingu lífeyris

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Tekinn af lífi á netinu og ranglega sakaður um alvarleg kynferðisbrot

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?