• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Pólitíkin: Viðtal við Guðrúnu Hafsteinsdóttur

Guðrún nefndi m.a. að það þyrfti að klára Reykjanesbrautina og nýja brú yfir Ölfusá. Þá þurfi að tryggja stöðugar samgöngur við Vestmannaeyjar og aukið öryggi í samgöngum austur á Höfn

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. júní 2021
in Fréttir, Innlent
A A
0
Guðrún Hafsteinsdóttir skipar 1. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi fyrir komandi kosningar til Alþingis. Guðrún kom ný inn í pólitíkina í vor með þátttöku í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi og hún er gestur Ingvars P. Guðbjörnssonar í Pólitíkinni í þessari viku. Þáttinn má nálgast hér.

Í þættinum ræðir Guðrún um sínar áherslur og um þær áherslur sem sjálfstæðismenn í Suðurkjödæmi ræddu helst í nýliðinni prófkjörsbaráttu, en þar voru heilbrigðismál, atvinnumál, samgöngumál og hugmyndir um hálendisþjóðgarð helstu málin.

Í heilbrigðismálum nefndi Guðrún að fólk í Suðurkjördæmi kalli á að aðgengi að heilbrigðisþjónustu verði til jafns við það sem best gerist. Mikilvægt sé að auknum mannfjölda fylgi aukin heilbrigðisþjónusta, s.s. á Suðurnesjum. Að valfrelsi verið aukið í heilbrigðisþjónustu, m.a. með einkarekinni heilbrigðisþjónustu til hliðar við núverandi þjónustu. Þá þurfi að tryggja þeim sem búa fjærst höfuðborginni eða við óstöðugar samgöngur, s.s. á Höfn og í Vestmannaeyjum, viðunandi heilbrigðisþjónustu m.a. með fæðingarþjónustu í Eyjum.

Guðrún nefndi m.a. að það þyrfti að klára Reykjanesbrautina og nýja brú yfir Ölfusá. Þá þurfi að tryggja stöðugar samgöngur við Vestmannaeyjar og aukið öryggi í samgöngum austur á Höfn með tvíbreiðum brúm m.a. á Hornafjarðarfljót.

Varðandi þjóðgarðshugmyndir segir Guðrún að fólk í Suðurkjördæmi sé almennt á móti þeim hugmyndum sem fram hafi komið í frumvarpi umhverfisráðherra. En að fólk sé ekki almennt á móti þjóðgörðum. Það megi m.a. stækka Vatnajökulsþjóðgarð og bæta umgjörðina. En ekki eigi að draga úr framtaki einstaklinga m.a. við uppgræðslu o.fl. og að hún sjálf sé algjörlega á móti því að taka 40-50% landsins undir þjóðgarð. Það eigi að skoða svæði sérstaklega út frá verndarþörf þegar stærðarmörk séu ákveðin.

Þegar atvinnumálin voru rædd nefndi Guðrún að atvinnurekendur kvarti m.a. yfir mikilli eftirlitsskyldu, að umhverfið sé þungt, skattar of háir o.fl. Að það sé nauðsynlegt að byggja upp flutningskerfi raforku til að atvinnulíf geti blómstrað, m.a. með Suðurnesjalínu 2. Um tækifærin nefndi hún m.a. að það þurfi að nýta hugvit fólks – hugvitið sé óþrjótandi auðlind. Þá sagði hún að stjórnmálamenn eigi ekki að flækjast fyrir. Þeirra hlutverk sé fyrst og síðast að búa til umhverfi þannig að fólk með hugmyndir geti látið drauma sína rætast án óþarfa hindrana.

„Komandi kosningabarátta leggst rosalega vel í mig vegna þess að stemningin í Suðurkjördæmi er rosalega góð,“ sagði Guðrún í lok viðtalsins sem einnig má finna hér að neðan á YouTube:

Umræða
Share2Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    46 deilingar
    Share 18 Tweet 12
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?