• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 27. október 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Atvinnuleysi 4,5% í febrúar

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
24. mars 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0
Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar mældist atvinnuleysi 4,5% í febrúar 2022. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka mældist 82,1% og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 78,4%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi jókst um 1,2 prósentustig á milli mánaða og hlutfall starfandi jókst um 0,9 prósentustig. Árstíðaleiðrétt leitni atvinnuleysis hefur lækkað stöðugt síðustu sex mánuði eða um 0,4 prósentustig á meðan leitni hlutfalls starfandi hefur aukist um 1,9 prósentustig.

Samkvæmt mælingu vinnumarkaðsrannsóknar, án árstíðaleiðréttingar, voru 215.400 (± 6.700) einstaklingar á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði í febrúar 2022 sem jafngildir 80,4% (± 2,5) atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 206.200 (± 6.400) starfandi og 9.200 (± 3.100) atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,0% (± 3,1) og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 4,3% (± 1,4).

Samanborið við febrúar 2021 hefur atvinnuleysi dregist saman um 1,8 prósentustig ámilli ára. Hlutfall starfandi jókst um 5,3 prósentustig á milli ára og atvinnuþátttaka jókst um 4,0 prósentustig. Starfandi unnu að jafnaði 34,4 (±1,3) stundir á viku í febrúar 2022 sem er einni og hálfri klukkustund minna en í febrúar 2021. Líklegt er að lækkun á vinnutíma á milli ára skýrist af mikilli fjarveru frá vinnu í febrúar 2022. Hlutfall starfandi einstaklinga við vinnu í viðmiðunarviku í febrúar 2022 var 85% samanborið við 95% í febrúar 2021.

Áætlað er að 29.700 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) í febrúar 2022 sem jafngildir 13,1% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 31,3% atvinnulausir, 22,1% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 13,6% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 33,0% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við febrúar 2021 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað lítillega eða um 0,7 prósentustig á milli ára. Árstíðaleiðrétt leitni slaka hefur dregist saman um 1,2 prósentustig síðustu sex mánuði.

Vinsamlegast athugið að samtala undirliða kann að vera ósamhljóða heildarniðurstöðum þar sem tölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Um gögnin
Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir febrúar 2022 ná til fjögurra vikna frá 31. janúar til og með 27. febrúar. Í úrtak völdust af handahófi 1.543 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.510 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 947 einstaklingum sem jafngildir 62,7% svarhlutfalli.

Umræða
Share5Tweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Lýst eftir  þremur gróðurhúsum

    Lýst eftir þremur gróðurhúsum

    12 deilingar
    Share 5 Tweet 3
  • Um þrettán milljarða hagnaður hjá sjávarútvegsfyrirtæki

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Ríkið útvegi 50.000 kaupleiguíbúðir – leiga 100 til 300 þúsund

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Rif Restaurant er frábært veitingahús í hjarta Hafnarfjarðar

    7 deilingar
    Share 3 Tweet 2
  • Fékk Nóbelsverðlaun fyrir að benda á að kvótakerfið er rugl

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?