• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 5. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Helgarveðrið

Í dag verður víða fínasta veður, á meðan spá morgundagsins er á heldur meira flökti

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
8. apríl 2022
in Fréttir, Innlent
A A
0

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag verður víða fínasta veður, á meðan spá morgundagsins er á heldur meira flökti. Þá gera sumar spár ráð fyrir að úrkomubakki sem verður skammt vestur af landinu, nái inná land og gæti því snjóað staðbundið á Faxaflóasvæðinu sem og á Breiðafirði. Aðrar spár gera hins vegar ráð fyrir að bakkinn nái nánast ekkert inná land. Ágætt er að hafa í huga að þótt þetta misræmi sé í spánum þá skeikar þetta mjög litlu þegar haft er í huga að veðurlíkönin sem notuð eru við útreikninga spáa eru býsna gróf og háupplausnarlíkönin nota niðurstöður þeirra við sína útreikninga, svo að 20-30 km færsla á úrkomubökkum er í raun alger minniháttar tilfærsla, en þegar úrkomubakkarnir eru eins nálægt landi og raun ber, þá getur það haft mikil staðbundin áhrif hjá okkur.

Veðuryfirlit
Yfir N-Grænlandi er 1027 mb hæð en skammt NA af Hvarfi er 1005 mb lægð. Um 1100 km A af Nýfundnalandi er 995 mb lægð sem fer ANA og yfir S-Svíþjóð er 965 mb lægð sem þokast A.

Veðurhorfur á landinu
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 en austlægari í dag. Skýjað með köflum en stöku él norðan- og austanlands. Frost 0 til 7 stig, en sums staðar frostlaust SV-til yfir daginn. Suðaustan 5-13 um landið V-vert á morgun, en annars hægari. Snjókoma eða él vestast og stöku él austantil, en annars þurrt. Hiti breytist lítið.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austlæg eða breytileg átt 3-5 m/s. Skýjað með köflum en þurrt og hiti kringum frostmark. Suðaudstan 5-10 og dálítil snjókoma á morgun, einkum síðdegis. Svipaður hiti.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á laugardag:
Austlæg átt, 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 suðvestan og vestanlands. Skýjað með köflum en líkur á dálítilli úrkomu um landið suðvestanvert. Frost 0 til 7 stig en frostlaust við suðvesturströndina.

Á sunnudag:
Austlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað með köflum eða bjartviðri en þykknar upp við suðurströndina um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 8 stig.

Á mánudag og þriðjudag:
Austan og norðaustan 5-10, en 10-15 m/s syðst. Bjartviðri um landið vestanvert annars skýjað og dálítil úrkoma við suður- og suðausturströndina. Allvíða frostlaust syðst, annars 0 til 7 stiga frost.

Á miðvikudag og fimmtudag:
Útlit fyrir áframhaldandi austlæga átt, allhvöss syðst, en annars mun hægari. Dálítil él syðst, annars yfirleitt þurrt og bjart. Hiti breytist lítið.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    Mannslát – kona í gæsluvarðhaldi

    85 deilingar
    Share 34 Tweet 21
  • Málaliðar fyrir stærstu útgerðarfélög landsins

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Lýst eftir Kristínu O. Sigurðardóttur

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Hvalfjarðargöng eru lokuð

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Barnavernd samþykkir tálmun til 15 ára

    180 deilingar
    Share 72 Tweet 45
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?