• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Spillingarlögregla og ráðherrar ræða Samherjamálið

Rætt um framsal á íslenskum einstaklingum sem tengjast málinu, til Namibíu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
7. júní 2022
in Erlent, Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Netumbo Nandi-Ndaitwah aðstoðarforsætisráðherra og utanríkisráðherra Namibíu er í heimsókn hér á landi ásamt sendinefnd. Hún átti fundi í dag með utanríkisráðherra og forsætisráðherra, þar sem Samherjamálið var til umræðu. Síðdegis átti hún svo fund með aðstoðarmanni ráðherra og starfsfólki í dómsmálaráðuneytinu.

Á fundi þeirra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra voru samskipti ríkjanna, fæðuöryggi og staða og horfur í heimsmálum meðal annars til umræðu. Ráðherrarnir ræddu Samherjamálið sem er til rannsóknar í báðum löndum. „Ég áréttaði á fundinum að þetta mál væri eðlilegum farvegi hjá lögreglu og saksóknurum beggja ríkja og að íslensk stjórnvöld tækju því af mikilli alvöru og legðu áherslu á góða samvinnu við namibísk stjórnvöld, hér eftir sem hingað til. Þetta var jákvæður og uppbyggilegur fundur og gagnlegt að heyra sjónarmið Nandi-Ndaitwah,“ segir Þórdís Kolbrún.

Í morgun áttu þær Nandi-Ndaitwah og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fund þar sem Samherjamálið var rætt.

Namibía var samstarfsríki Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu um tuttugu ára skeið. Flest voru verkefnin tengd sjávarútvegi en einnig var unnið að mörgum félagslegum verkefnum og stuðningi við minnihlutahópa eins og heyrnarlausa og þjóðflokkana sem kenndir eru við Owahimba og San. Í kjölfar þess samstarfs haslaði Samherji sér völl í landinu. Netumbo Nandi-Ndaitwah hefur verið aðstoðarforsætisráðherra frá árinu 2015 og fyrst kvenna til að gegna því embætti. Hún hefur verið utanríkisráðherra frá 2012.

Í fyrri frétt um málið er fjallað um að Ríkissaksóknari Namibíu og yfirmaður namibísku spillingarlögreglunnar ræddu við forsætisráðherra vegna Samherjamálsins.
Rætt var m.a. um mögulegt framsal á íslenskum einstaklingum sem tengjast málinu, til Namibíu

https://gamli.frettatiminn.is/07/06/2022/rikissaksoknari-namibi-og-yfirmadur-namibisku-spillingarlogreglunnar-raeda-vid-forsaetisradherra-vegna-samherjamalsins/

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    119 deilingar
    Share 48 Tweet 30
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    832 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • 3.000 manns missa atvinnuna

    111 deilingar
    Share 44 Tweet 28
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?