• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
25. apríl 2018
in Óflokkað
A A
0
Utanríkisráðuneytið undirbýr nú fullgildingu samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, svokallaðs Istanbúlsamnings

Stefnt er að því að félags- og jafnréttismálaráðherra afhendi fullgildingarskjal Íslands framkvæmdastjóra Evrópuráðsins síðar í þessari viku.

Evrópuráðið samþykkti samninginn um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi 11. maí 2011 og undirrituðu íslensk stjórnvöld hann sama dag. Samningurinn byggist á þeirri forsendu að ofbeldi gegn konum sé ein alvarlegasta tegund kynbundinna mannréttindabrota í heiminum. Markmið hans er meðal annars að vernda konur gegn öllum birtingarmyndum ofbeldis og fyrirbyggja ofbeldi, sækja til saka gerendur og uppræta ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi.
,,Jafnréttismál hafa lengi verið í forgrunni utanríkisstefnu Íslands. Við nýtum hvert tækifæri til að tala fyrir jafnrétti kynjanna og leggjum mikla áherslu á að kynbundnu ofbeldi, í hverskonar mynd, verði útrýmt bæði heima og heiman. Fullgilding þessa samnings er mikilvægt skref í þeirri baráttu,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
Frá því samningurinn var undirritaður hafa íslensk stjórnvöld unnið að nauðsynlegum breytingum á íslenskri refsilöggjöf til að hægt yrði að fullgilda hann, meðal annars með breytingum á lögum um meðferð sakamála sem dómsmálaráðherra lagði fram. Í þau hafa verið sett ákvæði um heimilisofbeldi, nauðungarhjónabönd og þvingaðar ófrjósemisaðgerðir. Þá hefur verið unnið að því að koma í farveg ýmsum skyldum og aðgerðum sem hvíla á ríkinu samkvæmt samningnum en krefjast ekki lagabreytinga, svo sem varðandi rekstur kvennaathvarfa, aðra þjónustu við þolendur og meðferð fyrir gerendur.
Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi er aðgengilegur á vef stjórnarráðsins.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    210 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    44 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    36 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    25 deilingar
    Share 10 Tweet 6
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?