• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Mánudagur, 23. febrúar 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Varnarmálaráðherrarnir ræddu Úkraínu og styrkingu varnargetu NATO

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir hönd Íslands

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
17. júní 2022
in Erlent, Fréttir
A A
0

Varnarbarátta Úkraínu gegn grimmilegum stríðsrekstri Rússlands í 113 daga og áhrif þess á öryggisumhverfi Evró-Atlantshafssvæðisins, stuðningur bandalagsríkja við Úkraínu og efling fælingar og varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins voru meginefni á fundi varnarmálaráðherra sem lauk í Brussel í gær. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum fyrir hönd Íslands.

Oleksii Reznikov, varnarmálaráðherra Úkraínu, sat hluta fundarins. Hann greindi frá alvarlegri stöðu mála þar í landi, baráttu úkraínska hersins gegn stríðsrekstri Rússlands og kallaði eftir áframhaldandi stuðningi við Úkraínu með vopnum, skotfærum og öðrum varnarbúnaði.. Varnarmálaráðherrar Finnlands, Svíþjóðar og Georgíu sátu einnig fundinn, ásamt fulltrúa Evrópusambandsins. Samhliða fundi varnarmálaráðherranna sótti utanríkisráðherra samráðsfund ríflega fjörutíu ríkja sem veita Úkraínu margþætta aðstoð undir forystu Bandaríkjanna.

,,Ákvörðun Pútíns að beita innrásarher sínum af fullum þunga til að hernema sjálfstætt og fullvalda grannríki er ólíðandi framferði. Ég lýsti á fundinum yfir aðdáun yfir baráttuþreki og hugrekki úkraínsku þjóðarinnar í varnarbaráttu sinni fyrir frelsi, fullveldi og framtíð landsins.  Eining og öflugur samhljómur var um aukinn og tímanlegan stuðning bandalagsríkja og samstarfsríkja við varnir Úkraínu og á fundinum ítrekaði ég staðfestu íslenskra stjórnvalda um áframhaldandi aðstoð“ segir Þórdís Kolbrún.

Atlantshafsbandalagið hefur styrkt varnargetu sína vegna innrásar Rússlands, einkum í austurjaðri bandalagsins. Ráðherrarnir ræddu hvernig megi enn frekar efla fælingu og varnir bandalagsins til lengri tíma og styrkja fjármögnun á starfsemi þess.. Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins munu taka mikilvægar ákvarðanir um þessi mál á fundi sínum í Madríd í lok júní. ,,Sú gerbreyting sem varð á öryggisumhverfi okkar í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu 24. febrúar krefst þess að við bregðumst við með frekari aðlögun bandalagsins svo það verði í stakk búið til að tryggja áfram varnir bandalagsríkjanna. Aðild Finnlands og Svíþjóðar að bandalaginu verður mikill styrkur sem mun efla öryggi og stöðugleika í okkar heimshluta“ segir ráðherra.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Viðvörun um eldgos á Tenerife

    Óttast eldgos á Tenerife

    152 deilingar
    Share 61 Tweet 38
  • Sturluð staðreynd

    41 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Ekkert gagnsæi vegna sölu á sjávarafurðum – Gríðarlegur mismunur á verði

    19 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Mikilvægar upplýsingar um berkla og berklasmit

    5 deilingar
    Share 2 Tweet 1
  • Silja Bára rektor fær á sig vantrauststillögu

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?