Hugleiðingar veðurfræðings
Í dag verður allhvöss eða hvöss austanátt syðst á landinu, en mun hægari annað staðar. Skýjað og úrkomulítið um landið austanvert en yfirleitt bjartviðri í öðrum landshlutum. Heldur minni vindur á morgun, en líkur á dálítilli úrkomu á austurhelmingi landsins. Hiti á bilinu 0 til 7 stig, mildast allra syðst.
Veðuryfirlit
850 km SA af Hvarfi er víðáttumikil 955 mb lægð sem fer ASA og grynnist.
Veðurhorfur á landinu
Austlæg átt 5-13 m/s, en 13-20 við suðurströndina. Dálítil rigning eða slydda með köflum austantil, en bjartviðri vestanlands. Hiti 0 til 7 stig, en kringum frostmark á Norðaustur- og Austurlandi. Austan 5-15 á morgun, hvassast syðst, annars svipað veður.
Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu
Austan 5-13 m/s og bjart með köflum, hiti 1 til 6 stig. Hægari og léttskýjað á morgun.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á mánudag:
Norðaustan 8-13 m/s og rigning með köflum, en yfirleitt þurrt á vestanverðu landinu. Hiti 1 til 6 stig.
Á þriðjudag:
Norðaustan 10-15, en hægari suðvestantil. Rigning, einkum norðan- og austanlands, en lengst af þurrt á Vesturlandi. Hiti 2 til 7 stig.
Á miðvikudag:
Austlæg átt og dálítil væta, en bætir í úrkomu um kvöldið. Hiti breytist lítið.
Á fimmtudag:
Snýst í vestlæga átt. Rigning með köflum vestantil, annars stöku skúrir. Hiti 1 til 6 stig.
Á föstudag:
Suðvestlæg eða breytilega átt og rigning eða slydda með köflum.