• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 4. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Gjaldskrárbreytingar í heilbrigðisþjónustu um áramót

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
11. janúar 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Greiðslur til sjúkratryggðra og gjöld sjúkratryggðra fyrir heilbrigðisþjónustu hækkuðu almennt 1. janúar sl. um 10,6% í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga. Þannig hækkuðu meðal annars sjúkradagpeningar og  bætur slysatrygginga um 10,6%. Aftur á móti helst greiðsluþáttaka vegna lyfjakostnaðar óbreytt ásamt komugjöldum í heilsugæslu. Einnig er haldið áfram með lækkun greiðsluþáttöku lífeyrisþega vegna tannlæknaþjónustu.

Óbreytt komugjöld í heilsugæslu endurspegla vilja stjórnvalda til að jafna aðgengi að heilbrigðiskerfinu þar sem heilsugæslan er oftast fyrsti viðkomustaðurinn. Þetta gjald helst því óbreytt og sem fyrr greiða börn, aldraðir og öryrkjar ekkert komugjald í heilsugæslu. Engar breytingar voru heldur gerðar á fjárhæðum sem kveða á um hámarksgreiðslur sjúkratryggðra vegna lyfjakostnaðar samkvæmt greiðsluþátttökukerfi lyfja. 

Lífeyrisþegar greiða minna fyrir tannlæknaþjónustu

Greiðsluþátttaka lífeyrisþega fyrir tannlæknaþjónustu hefur verið lækkuð markvisst síðustu ár. Áfram er haldið á þeirri braut. Þann 1. janúar lækkaði hlutur lífeyrisþega í tannlæknakostnaði úr 37% í 31%. Áætlað er að aukin útgjöld sjúkratrygginga vegna þessarar breytingar nemi um 270 milljónum króna á ársgrundvelli.

Ýmis umbótavinna er í gangi í heilbrigðisráðuneytinu varðandi vottorð, tilvísanir og fleira. Gætu sumar reglugerðir því tekið breytingum aftur síðar á árinu. Hér á eftir er listi yfir þær reglugerðir sem vísað er til í fréttinni, listinn er ekki tæmandi yfir þær reglugerðir sem tóku breytingum nú um áramótin:

  • Reglugerð nr. 1551/2022 um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu
  • Reglugerð um (14.) breytingu á reglugerð nr. 1025/2008 um sjúkradagpeninga
  • Reglugerð um (12.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar
  • Reglugerð nr. 1514/2022 um fjárhæðir bóta slysatrygginga almannatrygginga fyrir árið 2023
Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Hval­fjarð­ar­göng lokuð vegna hjól­reiða­manns – Búið er að loka göngunum aftur

    Hvalfjarðargöng eru lokuð

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Sýklalyfjaónæmar bakteríur (MÓSA) greinast í fyrsta sinn á Íslandi  

    11 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Sex húsleitir og fjöldi í gæsluvarðhaldi vegna skipulagðrar glæpastarfsemi

    3 deilingar
    Share 1 Tweet 1
  • Áskrifandi að kvóta og leigir fyrir milljónir af sundlaugabar í sólarlöndum

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • ,,Við vitum nákvæmlega hvað mun gerast hér á landi“

    2 deilingar
    Share 1 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?