Samfylkingin mælist áfram með mest fylgi flokka í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Fylgi Pírata og Sósíalista eykst lítillega milli mánaða. Stuðningur við ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur ekki mælst minni frá upphafi, ríkisútvarpið greindi frá.
Samfylkingin er stærsti flokkurinn og er með mestsa fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Alls segjast 24% kjósenda myndu greiða flokknum atkvæði ef gengið yrði til kosninga nú. Sjálfstæðisflokkurinn er með minna fylgi eða 22,5%.
Samfylkingin fengi 17 menn á Alþingi ef þetta niðurstöður kosninga en Sjálfstæðisflokkurinn aðeins 15.
Píratar bæta við sig fylgi milli mánaða og mælast með 12,1% en stuðningur við Framsóknarflokkinn dregst lítillega saman og er nú 10,8%.
Framsókn hefur tapað mestu fylgi allra frá þingkosningunum 2021 þegar hann fékk 17,3% atkvæða og þrettán þingmenn kjörna. Yrðu þetta niðurstöður kosninga myndi þingmönnum fækka í sjö.
Vinstri græn hafa sömuleiðis tapað miklu fylgi frá kosningum og mælast með 6,8%, jafnmikið og í síðasta mánuði. Það skilaði flokknum aðeins fjórum þingmönnum.
Fylgi Viðreisnar er á svipuðum slóðum og í síðustu kosningum, mælist 7,7%. Flokkur fólksins mælist með 5,6%, Miðflokkur 5,3%. Sósíalistar mælast með rétt undir 5,0% og fengju samkvæmt þessu einn kjördæmakjörinn þingmann, en myndu rétt missa af úthlutuðum jöfnunarþingmönnum.
Stuðningur við ríkisstjórnina aldrei minni
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja er 40%, og hefur dregist saman um fjórtán prósentustig frá kosningum.
Að sama skapi fækkar þeim sem segjast styðja ríkisstjórnina. Það gera 40% kjósenda, og hafa ekki verið færri frá því ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum að því er kemur fram í fréttinni.