• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Föstudagur, 9. maí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Verndun hafsvæða innan íslenskar lögsögu

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
14. apríl 2023
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur skipað starfshóp sem ætlað er að skilgreina áherslur um verndun hafsvæða innan íslenskrar lögsögu til samræmis við markmið alþjóðasamninga.

Hópurinn mun rýna stjórnkerfi verndunar og nýtingar hafsins og er áhersla lögð á virka svæðisvernd í hafi. Svæði sem hafa mikið verndargildi, svæði með vistfræðilega sérstöðu og svæði sem eru í hættu á að vera raskað verða afmörkuð. Hópurinn mun einnig gera tillögur að svæðum sem þurfa verndunar við.

Verndun hafsvæða er mikilvæg til að viðhalda og efla líffræðilega fjölbreytni í hafi og á hafsbotni. Hnignun hafsvæða og loftslagsbreytingar hafa aukið álag á vistkerfi og er formleg verndun því liður í að viðhalda seiglu vistkerfa gegn slíkum umhverfisbreytingum.

Hópurinn á að horfa til þess markmiðs alþjóðlegra samninga að a.m.k. 30% heimshafanna verði innan verndarsvæða eða njóti annarrar virkrar svæðisbundinnar verndar og verði stefnt að verndun innan efnahagslögsögu Íslands verði í samræmi við fyrrgreind markmið. Lögð er áhersla á að markmið verndunar séu skýr, að árangur sé tryggður með vöktun og eftirliti, unnið verði á vísindalegum grunni og í samráði við haghafa.

Björn Helgi Barkarson skrifstofustjóri sjálfbærni í matvælaráðuneytinu er formaður hópsins.
Aðrir meðlimir eru:

  • Agnar Bragi Bragason, sérfræðingur, matvælaráðuneytinu
  • Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, sviðsstjóri, Hafrannsóknastofnun
  • Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu
  • Snorri Sigurðsson, sviðsstjóri, Náttúrufræðistofnun Íslands
  • Þórdís Björt Sigþórsdóttir, teymisstjóri, Umhverfisstofnun

Starfsmaður stýrihópsins verður Freydís Vigfúsdóttir, sérfræðingur í matvælaráðuneytinu.
Gert er ráð fyrir að stýrihópurinn skili fyrstu tillögum til ráðherra fyrir 1. desember 2023.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Brúin yfir Ölfusá verður lokuð

    Ölfusárbrú lokað

    211 deilingar
    Share 84 Tweet 53
  • Selja atvinnuleyfi á níu milljónir til útlendinga – Ólögleg sala atvinnuleyfa til Íslands

    45 deilingar
    Share 18 Tweet 11
  • Mannslát – gæsluvarðhald

    37 deilingar
    Share 15 Tweet 9
  • Bankareikningum Flokks fólksins lokað í Arion banka

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Kvörtuðu yfir meintum ólöglegum símhlerunum – Fengu margra ára fangelsisdóma fyrir glæpi

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Add New Playlist

No Result
View All Result
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

Fréttatíminn © 2023

Are you sure want to unlock this post?
Unlock left : 0
Are you sure want to cancel subscription?