Frá miðnætti í dag hafa 165 jarðskjálftar, allir undir 2 að stærð, mælst við kvikuganginn, en það er nokkuð færri en síðustu daga en þá hafa mælst um 1.500-1.800 skjálftar á sólarhring. Gera má ráð fyrir að hvassviðri sem nú gengur yfir landið hefur áhrif á næmni kerfisins til að finna minnstu skjálftana, því er erfitt að meta hvort dragi úr skjálftavirkni að stöddu.
Áfram hægir á aflögun í og við kvikuganginn sem myndaðist 10. nóvember en land heldur áfram að rísa við Svartsengi. Hefur hraðinn á risinu í Svartsengi haldist nánast óbreyttur síðasta sólarhringinn.
Veðurstofan, í góðu samstarfi við sérfræðinga Háskóla Íslands, mun halda áfram vakta svæðið eins vel og hægt er og stöðugt endurmeta og túlka þau gögn sem berast.
Eins og áður hefur komið fram þá hefur Veðurstofan aukið á vöktun í og við Grindavík, sem og á svæðinu umhverfis Hagafell á meðan íbúar nálgast eigur sínar og verðmæti og verktakar vinna við varnargarða. Skilvirkni þessarar vöktunar veltur á góðri næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS mælinga en næmnin er mjög háð veðuraðstæðum. Í ljósi þess að veðurspá næstu tveggja daga bendir til úrkomu og talsverðs vinds má gera ráð fyrir að bæði næmni jarðskjálfta- og rauntíma GPS vöktunar Veðurstofunnar skerðist.
Brim hefur áhrif á lágu tíðnina í óróamælingunum þar sem öldur koma fram sem órói. Þoka og dimm él hafa síðan áhrif á sjónræna staðfestingu á gosi með myndavélum.