• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Þriðjudagur, 3. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Sósíalistaflokkurinn ætlar ekki að vera með í meirihluta

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
29. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

Sósíalistaflokkurinn ætlar ekki að vera með í meirihluta

Þau Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi og Daníel Örn Arnarsson varaborgarfulltrúi og fulltrúar Sósíalistaflokksins gáfu það út í kvöld að flokkurinn mun ekki taka þátt í myndun á neinum meirihluta í borginni og að flokkurinn muni starfa án þátttöku í meirihluta í borgarstjórn.
,,Eftir samráð við félaga okkar í Sósíalistaflokknum höfum við ákveðið að taka ekki þátt í fyrirhuguðum viðræðum um meirihlutasamstarf í borgarstjórn Reykjavíkur. Framboð sósíalista var framboð hinna valdalausu í borginni; láglaunafólks, innflytjenda, leigjenda, eftirlaunafólks, öryrkja og annarra hópa sem hefur verið haldið frá völdum. Þessir hópar eru sjaldnast ávarpaðir, á þá er ekki hlustað og ekki er gengið út frá hagsmunum þeirra þegar ákvarðanir eru teknar.

Góður stuðningur við framboð sósíalista færði þessum hópum einn borgarfulltrúa. En einn borgarfulltrúi tjóðraður niður í meirihlutasamstarf við aðra flokka mun fá litlu áorkað. Einn borgarfulltrúi getur ekki breytt kerfinu innan frá, allra síst ef hans fyrsta verk verður að ganga inn í svo til óbreyttan meirihluta um stefnu sem sósíalistar gagnrýndu harðlega í kosningabaráttunni.
En einn borgarfulltrúi getur tekið virkan þátt með félögum sínum í að byggja upp samstöðu meðal láglaunafólks, innflytjenda, leigjenda, eftirlaunafólks, öryrkja og annarra valdalausra hópa og verið farvegur fyrir baráttu þeirra inn í borgarstjórn.
Þannig borgarfulltrúar viljum við vera og þannig borgarfulltrúa eru félagar okkar í Sósíalistaflokknum að kalla eftir; borgarfulltrúa sem hverfur ekki strax eftir kosningar inn í bakherbergi Ráðhússins heldur starfar áfram að uppbyggingu þeirrar hreyfingar sem sendi okkur inn í borgarstjórn.
Það er okkar markmið að þjóna þessari vaxandi hreyfingu næstu árin og byggja upp með henni öfluga og róttæka hagsmunabaráttu hinna kúguðu og valdalausu. Það er aðeins með samstöðu og styrk fjöldans sem við getum breytt samfélaginu. Ekkert mun ávinnast í samningaviðræðum eins borgarfulltrúa við ríkjandi öfl.“
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    55 deilingar
    Share 22 Tweet 14
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    38 deilingar
    Share 15 Tweet 10
  • Salmonella í fæðubótarefni

    10 deilingar
    Share 4 Tweet 3
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    35 deilingar
    Share 14 Tweet 9
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    18 deilingar
    Share 7 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?