• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Laugardagur, 12. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Íslandsstofa með nýtt myndband – Ísland á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
31. maí 2018
in Óflokkað
A A
0

Í dag kynnir Íslandsstofa nýtt myndband þar sem öllum er boðið að ganga til liðs við Team Iceland og styðja við Ísland á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi í júní.
Það eru þau Steindi Jr. og Anna Svava Knútsdóttir sem flytja skilaboðin um að allir geti staðið með Íslandi á HM, líka þeir sem hafa ekki áhuga á fótbolta og fá til þess óvænta hjálp frá fulltrúa íslenska hestsins. Deilið þessu með vinum ykkar erlendis og þeir gætu unnið ferð til Íslands til að horfa á leikinn.

 
Inspired by Iceland kynnir í dag nýtt myndband þar sem öllum er boðið að ganga til liðs við Team Iceland og styðja við Ísland á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi í júní.
Inspired by Iceland kynnir í dag nýtt myndband þar sem öllum er boðið að ganga til liðs við Team Iceland og styðja við Ísland á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Rússlandi í júní. Það eru þau Steindi Jr. og Anna Svava Knútsdóttir sem flytja skilaboðin um að allir geti staðið með Íslandi á HM, líka þeir sem hafa ekki áhuga á fótbolta og fá til þess óvænta hjálp frá fulltrúa íslenska hestsins.
Íslendingar bjóði erlendum vinum í Team Iceland
Markmiðið með Team Iceland er að skapa fólki vettvang til að lýsa yfir stuðningi við Ísland á HM og kynna hvað Ísland stendur fyrir að sögn Ingu Hlínar Pálsdóttur, forstöðumanns hjá Íslandsstofu. „Nú fer að koma að stóru stundinni og við viljum hvetja alla Íslendinga til að taka höndum saman og bjóða erlendum vinum sínum í Team Iceland. Við viljum fá sem flesta með okkur í lið til að veita landsliðinu okkar stuðning og um leið nýta athyglina til að kynna Ísland.“
Þeir sem ganga í Team Iceland geta unnið ferð til Íslands til að horfa á fyrsta leikinn gegn Argentínu 16. júní hér á landi.

10 milljónir séð forsetahjónin bjóða heiminum í Team Iceland
Team Iceland herferðin hófst 8. mars með myndbandi þar sem forsetahjónin buðu heimsbyggðinni að taka þátt og hafa nú um 10 milljón manns horft á myndbandið. Umfjallanir um Ísland í tengslum við þátttökuna á HM hafa birst í fjölmörgum erlendum miðlum víða um heim og fjöldi erlendra fjölmiðlamanna hafa komið til landsins til að kynna sér Ísland nánar. Fjöldi umfjallana hafa birst í erlendum miðlum og tæplega 30 þúsund manns frá 168 löndum hafa nú þegar skráð sig í Team Iceland.
Markaðsherferðin er unnin fyrir íslenskt atvinnulíf með það markmið að auka vitund um Ísland sem góðan stað til að heimsækja, sem upprunaland gæða í matvælum, vörum og framleiðslu og tilvalinn stað fyrir fjárfestingar og viðskipti. Ákveðið var að fara af stað með verkefnið til að nýta það mikla kastljós sem fylgir þátttöku Íslands á HM í Rússlandi til að sýna hvað Ísland hefur upp á að bjóða. Verkefnið er unnið í samstarfi stjórnvalda og fyrirtækja. Helstu aðilar eru Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök iðnaðarins, sem eru fulltrúar fjölmargra fyrirtækja ásamt Icelandair og Bláa lóninu. Íslandsstofa heldur utan um framkvæmd markaðsverkefnisins sem er unnið undir merkjum Inspired by Iceland. Verkefnið er unnið í góðri samvinnu við KSÍ.
 

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Eru vegtollar lausnin?

    Hringveginum verður lokað í báðar áttir

    43 deilingar
    Share 17 Tweet 11
  • Ríflega 150% verðmunur á fiski – Veiðigjöld greidd í samræmi við heimatilbúið tombóluverð

    9 deilingar
    Share 4 Tweet 2
  • Michael Moore fjallar um glæpina sem gerðu Ísland gjaldþrota

    466 deilingar
    Share 186 Tweet 117
  • Veitingahúsið Eyri er fimm stjörnu og er við Hjalteyri

    6 deilingar
    Share 2 Tweet 2
  • Alvarlega slasaður vegna hnífsstungu

    4 deilingar
    Share 2 Tweet 1
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?