• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Miðvikudagur, 30. júlí 2025
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

Tveir handteknir vegna andláts á Selfossi

Tilkynningar til lögreglu vegna heimilisofbeldis

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. júní 2024
in Fréttir, Innlent
A A
0

Ríkislögreglustjóri hefur birt skýrslu um fjölda tilkynninga til lögreglu vegna heimilisofbeldis og ágreinings milli skyldra/tengdra aðila fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins á vefsvæði lögreglunnar. Lögreglan á landsvísu fékk 568 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila á tímabilinu.

Jafngildir það að meðaltali rúmlega 6 slíkum tilkynningum á dag, eða 189 tilkynningum á mánuði. Tilkynningum fækkar því um 3% samanborið við sama tímabil á síðasta ári og er meginskýringin að færri ágreiningsmál eru skráð. Ef aðeins er horft til heimilisofbeldismála þá fækkar tilkynntum brotum um rúm 9%.

Skýrsluna má finna hér.

Beiðnum um nálgunarbann fjölgar

Í febrúar 2024 gaf ríkissaksóknari út ný fyrirmæli til ákærenda um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Þar er meðal annars fjallað um vægari úrræði ef viðkomandi hefur ekki áður gerst sekur um brot gegn nálgunarbanni eða brottvísun, handlagningu síma og tölvu og notkun á ökklabandi við ítrekuð brot. Ekki má finna upplýsingar í skýrslunni um nýtingu vægari úrræða en beiðnir um nálgunarbann voru 33 eða rúmlega 6% fleiri en meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan.

Heimilisofbeldismálum þar sem lífi og heilsu árásarþola í nánum samböndum (218. gr. b Alm. hgl.) var ógnað endurtekið eða á alvarlegan hátt fækkar umtalsvert. Þau voru 15 talsins á tímabilinu eða helmingi færri en meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan.

Þriðjungur manndrápa heimilisofbeldi

Í skýrslunni má finna greiningu á manndrápsmálum á tímabilinu 1999-2022. Á tímabilinu voru 34% mála þar sem fyrir lágu náin eða fjölskyldutengsl á milli brotaþola og sakbornings, þar af 21% þar sem um var að ræða maka eða fyrrum maka. Algengustu tengslin voru kunningjar eða vinir eða í 56% mála.

Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi nákomins, þ.e. árásaraðili og árásarþoli eru skyldir, tengdir eða hafa sögu um tengsl og eru tilvikin ekki bundin við heimili fólks. Útköll lögreglu þar sem ekki er grunur um brot eru skráð sem ágreiningur á milli skyldra og tengdra. Mikilvægt þykir að skrá bæði ágreining og heimilisofbeldi til að fá heildstæða mynd af tilvikum og hvort tilvik leiði til ítrekaðra og alvarlegri atvika.

Ætíð er hægt að tilkynna brot með því að hafa samband við 112. Á ofbeldisgátt 112.is má einnig finna nánari upplýsingar um þau úrræði sem standa til boða.

Umræða
Share1Tweet1
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Snjóaði hressilega sunnan- og suðvestanlands

    Hverjir eiga Ísland? – Nýríkir milljarðamæringar

    123 deilingar
    Share 49 Tweet 31
  • Þessir fengu 4200 íbúðir og einbýli Íbúðarlánasjóðs – Verð frá einni milljón

    833 deilingar
    Share 333 Tweet 208
  • Lögreglan leitar tveggja manna

    26 deilingar
    Share 10 Tweet 7
  • Verslanir sem ekki taka reiðufé sektaðar um 315 milljónir

    57 deilingar
    Share 23 Tweet 14
  • Bankarnir hóta viðskiptavinum

    528 deilingar
    Share 211 Tweet 132
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?