Afbrotatölfræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir maímánuð 2018 hefur verið birt. Í skýrslunni eru teknar saman upplýsingar um helstu afbrot sem hafa verið tilkynnt til lögreglu
Fjallað er um þróunina á síðustu 13 mánuðum og tölur það sem af er ári bornar saman við sama tímabil síðustu þriggja ára.
Skráð voru 740 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í maí sem er smávægileg fjölgun miðað við aprílmánuð. Tilkynntum innbrotum fjölgaði á milli mánaða. Tilkynnt var um 97 innbrot í maí, en 72 í apríl. Nytjastuldum fjölgaði einnig á milli mánaða. Í maí bárust færri tilkynningar um ofbeldis- og kynferðisbrot en höfðu borist að meðaltali mánuðina á undan.
Skráðum umferðarlagabrotum fjölgaði hins vegar umtalsvert. Í maí voru skráð 3.856 umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu og hafa ekki verið skráð jafn mörg brot í einu mánuði frá því að samræmdar skráningar hófust hjá lögreglu árið 1999. Stærstur hluti þessar mála eru vegna of hraðs aksturs, eða tæplega 3.000 brot.