Fyrsta tölublað Sportveiðiblaðsins í ár, er að verða uppselt
Að sögn Gunnars Benders er salan á Sportveiðiblaðinu mjög góð um þessar mundir og blaðið er nánast uppselt en fáein eintök eru eftir. Um er að ræða hið stórglæsilega nýjasta tölublað Sportveiðiblaðsins en í blaðinu er m.a. tímamótaviðtal við Þórarinn Sigþórsson „Tóta tönn“ en hann hefur landað 20.511 löxum!
Einnig er viðtal við stórsöngvarann Kristján Jóhannsson og Jón Þór Ólason sem er nýkjörinn formaður SVFR.
,,Við skoðum flugurnar hans Sveins Þórs Arnarsonar og ferðumst milli veiðistaða í Laxá í Dölum. Árni Matthíasson segir okkur frá Tungulæk og Haugurinn segir okkur frá „trendinu“ í laxaflugum fyrir sumarið.
Einnig er að finna í blaðinu fjölmargar veiðisögur og greinar þar sem flakkað er frá Elliðavatni til Suður-Ameríku með millilendingu í Finnmörku. Þetta er aðeins brot af því sem við segjum frá í þessu fyrsta tölublaði ársins.“