Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu varar við svikaöldu sem tengist rafmyntum sem nú herja á landsmenn.
Undan farnar vikur hafa komið upp fjölmörg fjársvikamál þar sem fólk er blekkt í gegnum síma eða netskilaboð til þess að kaupa rafmyntir í gegnum síður á internetinu.
Lögregla vara almenning við því að samþykkja slík boð og bendir á að svik sem þessi eru hluti af skipulagðri glæpastarfsemi.
Gjarnan er hringt í fólk úr íslenskum símanúmerum jafnvel þó sá sem hringi tali ensku og fólki haldið þar á spjalli á meðan svikin fara fram. Jafnvel þó íslensk símanúmer séu notuð er viðkomandi aðili ekki staddur á Íslandi.
Nokkrar góðar reglur:
• Neita öllum viðskiptum við ókunnuga í gegnum síma
• Gefa aldrei upp lykilorð eða netfang til þess að fá send skilaboð frá þessum aðilum.
• Gefa aldrei upp öryggistölu fyrir rafræn skilríki.
• Hringdu í vin ef þú ert í vafa
Ef einhver, gegnum síma, biður um að fólk fari inn á ókunnuga síðu með rafrænum skilríkjum er eini tilgangur viðkomandi að yfirtaka síma og heimabanka viðkomandi. Eftir að búið er að færa fé í kauphöll fyrir rafmyntir á netinu er ómögulegt fyrir lögreglu eða fjármálastofnanir að endurheimta það fé.