Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem var dæmdur í desember í fyrra í tveggja mánaða fangelsi fyrir manndráp af gáleysi.
Var maðurinn sakfelldur fyrir að hafa í nóvember 2021 ekið hópbifreið án nægilegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða forgang gangandi vegfaranda þannig að hópbifreiðin hafnaði á konu sem gekk gengt grænu umferðarljósi yfir gangbraut. Konan féll við og lenti undir bifreiðinni með þeim afleiðingum að hún hlaut fjöláverka og lést nær samstundis. Mbl. fjallaði fyrst um málið.
Neitaði sök
Maðurinn neitaði sök og byggði á því að umrætt slys yrði ekki rakið til gáleysis hans. Bar hann því við að hann hefði ekki séð konuna í aðdraganda slyssins
Með hliðsjón af dómaframkvæmd og með vísan til 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing mannsins ákveðin fangelsi í tvo mánuði en fullnustu frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var manninum gert að greiða eiginmanni konunnar og dóttur hvoru um sig 2.000.000 króna í miskabætur.
Fram kemur í dómi héraðsdóms, að samkvæmt frumskýrslu lögreglu barst lögreglu tilkynning fimmtudaginn 25. nóvember 2021, kl. 8.32, um að umferðarslys hefði orðið á gatnamótum Skeiðarvogs og Gnoðarvogs í Reykjavík. Hefði strætisvagni verið ekið á gangandi vegfaranda og væri hann fastur undir vagninum.
Þá kemur fram í frumskýrslunni að myrkur hafi verið á vettvangi en götuljós hafi lýst. Þá hafi verið mikil rigning. Ekki hafi verið hálka en lofthiti hafi verið um fjórar gráður. Kemur fram að á vettvangi hafi mátt sjá strætisvagn kyrrstæðan í Gnoðarvogi til vesturs. Hafi kona legið með neðri hluta líkamans undir vagninum. Hafi sjúkraflutningamenn hafið endurlífgun. Konan var flutt á bráðamóttöku í Fossvogi þar sem hún var úrskurðuð látin.