• Auglýsingar
  • Fréttaskot
  • Hafa samband
  • Styrkja
  • Innskráning
  • Nýskráning
Fimmtudagur, 5. mars 2026
FRÉTTATÍMINN
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
  • Forsíða
  • Fréttir
    • Innlent
    • Erlent
    • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Veiði
  • Afþreying
  • Neytendur
No Result
View All Result
FRÉTTATÍMINN
No Result
View All Result
  • Innlent
  • Erlent
  • Viðskipti
  • Aðsent & greinar
  • Afþreying
  • Neytendur

 

 

,,Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum“

Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum

,,Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum“

Ritstjórn skrifað af Ritstjórn
4. desember 2024
in Fréttir, Innlent, Viðskipti
A A
0

Yfirlýsing fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Desember 2024

Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar
Fjármálastöðugleikanefnd ásamt ritara nefndarinnar
Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum. Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun gott. Hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa gæti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Þá eru einnig viðsjárverðir tímar á alþjóðavettvangi sem gætu haft ófyrirséð áhrif. Enn sem komið er ber lítið á vanskilum eða greiðsluerfiðleikum bæði hjá heimilum og fyrirtækjum.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur lokið árlegu endurmati á kerfislega mikilvægum fjármálafyrirtækjum. Nefndin staðfesti kerfislegt mikilvægi Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans.

Fjármálastöðugleikanefnd hefur einnig lokið reglubundnu endurmati kerfisáhættuauka og eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki.

Nefndin ákvað að lækka gildi kerfisáhættuaukans úr 3% í 2%. Þessi lækkun byggir á því mati nefndarinnar að kerfisáhætta hafi minnkað frá því að gildi aukans var fyrst ákveðið árið 2016. Ljóst er að viðnámsþróttur fjármálakerfisins hefur aukist á síðustu árum, sem birtist m.a. í minni breytileika helstu hagstærða þrátt fyrir að ýmis áföll hafi dunið yfir. Þá hafa ný þjóðhagsvarúðartæki sannað gildi sitt og umgjörð í kringum viðhald fjármálastöðugleika er nú heilsteyptari en áður.

Nefndin ákvað einnig að hækka eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki úr 2% í 3%. Þessi hækkun miðar að því að fanga betur þá áhættu sem að hagkerfinu stafar vegna stærðar og umfangs kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja.

Lækkun kerfisáhættuauka og hækkun eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki hefur í för með sér að heildareiginfjárkrafa á kerfislega mikilvægu bankana þrjá verður nánast óbreytt. Hins vegar mun eiginfjárkrafan lækka á smærri innlánsstofnanir sem ekki teljast kerfislega mikilvægar.

Fjármálastöðugleikanefnd samþykkti einnig stefnu um beitingu sveiflujöfnunarauka sem nú hefur verið birt. Hún felur m.a. í sér að gildi aukans sé að jafnaði á bilinu 2-2,5% af innlendum áhættugrunni. Nefndin fylgir hér fordæmi ýmissa Evrópuríkja. Jafnframt var ákveðið að halda gildi aukans óbreyttu í 2,5% í ársfjórðungslegu endurmati þess. Nefndin áréttar mikilvægi þess að fjármálafyrirtæki búi yfir sterkri eiginfjárstöðu til að tryggja viðnámsþrótt gagnvart áföllum.

Fjármálastöðugleikanefnd undirstrikar mikilvægi þess að áfram sé unnið að því að auka rekstraröryggi í greiðslumiðlun. Jákvæð skref í átt að innlendri óháðri greiðslulausn hafa verið stigin og nefndin væntir þess að innleiðing sjálfstæðrar lausnar hefjist á næsta ári.

Fjármálastöðugleikanefnd mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir að ráða til að varðveita fjármálastöðugleika þannig að fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Frétt nr. 20/2024
4. desember 2024

Fylgiskjöl:

1.  Viðmið við ákvörðun um gildi sveiflujöfnunarauka.

2. Minnisblað – bakgrunnur ákvörðunar um sveiflujöfnunarauka.

a. Excel-skjal með gögnunum í minnisblaðinu.

3. Minnisblað – bakgrunnur ákvörðunar um kerfisáhættuauka.

4. Minnisblað – bakgrunnur ákvörðunar um kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki.

Umræða
ShareTweet
Ritstjórn

Ritstjórn

AUGLÝSING
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair og krefjast ómerkingar

    107 deilingar
    Share 43 Tweet 27
  • Hægt verði að reka starfsmann án áminningar

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
  • Skrifaði bréf til foreldranna og sagðist vilja deyja í friði

    48 deilingar
    Share 19 Tweet 12
  • Laun seðlabankastjóra hækkuðu um 43% – Er með 43 milljónir á ár

    39 deilingar
    Share 16 Tweet 10
  • Trúa á konum en ekki körlum – Sjálfsvíg karla

    21 deilingar
    Share 8 Tweet 5
AUGLÝSING

Fréttatíminn © 2023

Hæ!

Login to your account below

Gleymt Lykilorð Nýskráning

Create New Account!

Fill the forms bellow to register

Fylla þarf út alla reiti. Skrá inn

Retrieve your password

Please enter your username or email address to reset your password.

Skrá inn

Viltu stykrja óháða blaðamennsku?

Með því að styrkja Fréttatímann gefur þú óháðri blaðamennsku sterkari rödd.


    This will close in 0 seconds

    Add New Playlist

    No Result
    View All Result
    • Fréttir
      • Innlent
      • Erlent
    • Viðskipti
    • Aðsent & greinar
    • Afþreying
    • Neytendur

    Fréttatíminn © 2023

    Are you sure want to unlock this post?
    Unlock left : 0
    Are you sure want to cancel subscription?